Dómur vegna kynferðisbrots ómerktur og vísað heim í hérað
Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir manni, sem dæmdur var í árs fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundið, fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og nauðgun gegn fyrrverandi unnustu sinni. Hæstiréttur vísar málinu aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.
Segir í niðurstöðu Hæstaréttar að þeir ágallar hafi verið á málinu að hinn ákærði var ekki inntur eftir því fyrir héraðsdómi hver afstaða hans hefði verið til nánar tiltekinna þátta sakarefnisins. Að öllu virtu var talið að slíkir annmarkar væru á meðferð málsins í héraði og hinum áfrýjaða dómi að óhjákvæmilegt væri að ómerkja héraðsdóm og vísa málinu heim í hérað til frekari skýrslutöku af ákærða, munnlegs málflutnings og dómsálagningar að nýju.
Með ákæru ríkissaksóknara á síðasta ári var manninum gefið að sök frelsissvipting, líkamsárás og nauðgun á unnustu sinni á þeim tíma með því að hafa farið að næturlagi inn í íbúð þar sem hún var gestkomandi, togað hana þaðan út í bifreið. Ekið með hana á brott og síðan dregið hana út úr bifreiðinni og slegið hana í andlit eða líkama.
Síðan hafi hann sett stúlkuna aftur inn í bifreiðina, ekið að heimili hennar og dregið hana á hárinu út úr bifreiðinni eftir möl og gangstétt og upp stiga inn í íbúð hennar á 2. hæð hússins. Farið með hana inn á salerni og lokað hurðinni. Þar hafi hann veist að henni með ofbeldi, afklætt hana, sett fingur upp í kynfæri hennar og við það að nokkru notfært sér að hún gæti ekki spornað við verknaðinum vegna ölvunar.
Slegið
hana ítrekað í andlit og líkama, meðal annars hnefahöggi í andlitið, sem hafi
valdið því að höfuð hennar hafi skollið utan í vegg. Hafi hún hlotið af þessu
öllu glóðarauga og mar, rispur og bólgur í andlit, mar á enni og höfði, eymsli
í hársverði og skrámur og mar víða um líkamann.
Segir í dómi Hæstaréttar að ekki verði séð að maðurinn hafi verið inntur nægjanlega í héraðsdómi um ýmis atriði ákærunnar og því séu slíkir annmarkar á meðferð málsins í héraði og hinum áfrýjaða dómi að óhjákvæmilegt er að ómerkja hann og vísa því heim í hérað til frekari skýrslutöku af ákærða, munnlegs málflutnings og dómsálagningar á ný.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 6. nóvember 2008, Innlent Máli flugumferðarstjóra vísað heim
- Miðvikudagur, 21. janúar 2009, Innlent Fangelsisdómur fyrir kynferðisbrot
- Fimmtudagur, 22. október 2009, Innlent Sýknudómur vegna peningafölsunar ómerktur
- Fimmtudagur, 28. maí 2009, Innlent Fangelsi fyrir ofbeldisbrot gegn unnustu
- Fimmtudagur, 15. nóvember 2007, Innlent 15 mánaða fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































