Gerir athugasemdir við ýmis bókhaldsatriði

Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við ýmis atriði bókhalds og fjárreiðna hjá opinberum aðilum

Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við ýmis atriði bókhalds og fjárreiðna hjá opinberum aðilum Þorkell Þorkelsson

Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við ýmis atriði bókhalds og fjárreiðna hjá opinberum aðilum í skýrslu um endurskoðun ríkisreiknings 2007. Flestar þessara athugasemda hafa birst áður í skýrslum stofnunarinnar.

Almennt telur Ríkisendurskoðun að bókhald og fjárreiður stofnana séu í góðu horfi. Engu að síður gerði stofnunin sem fyrr athugasemdir við framkvæmd fjárlaga hjá mörgum stofnunum, auk annarra athugasemda, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun.
 
Athugasemdir við fjármögnun stofnana

Samtals stóðu 55% fjárlagaliða í A-hluta ríkissjóðs með afgang en 15% með halla umfram 4% af fjárheimild í árslok 2007. Ríkisendurskoðun hefur margsinnis hvatt stjórnvöld til að taka á  hallarekstri stofnana í samræmi við ákvæði fjárreiðulaga og reglugerðar um framkvæmd fjárlaga. Einnig hefur stofnunin lagt til að skýrar reglur verði settar um meðferð ónýttra fjárheimilda.

Að auki voru gerðar ýmsar aðrar athugasemdir, t.d. við nokkrar stofnanir sem fjármögnuðu hallarekstur með yfirdrætti á bankareikningi en slíkt er óheimilt. Þá telur Ríkisendurskoðun að skýrari reglur vanti um ýmis bókhaldsatriði, m.a. um staðfestingar reikninga og skýringar á fylgiskjölum.
 
Ríkisendurskoðun kannaði fyrirkomulag upplýsingatæknimála hjá allmörgum stofnunum. Fram kom að nokkrar stofnanir með sérsmíðuð upplýsingakerfi höfðu ekki látið meta innri eftirlisþætti þeirra.

Að mati Ríkisendurskoðunar er mikilvægt að allar stofnanir með slík kerfi láti meta þessa þætti. Þá leiddi könnun á fyrirkomulagi ræstingar og öryggisþjónustu í ljós að hjá mörgum stofnunum sem hafa útvistað þessum verkefnum geta viðkvæm gögn legið á borðum starfsmanna. Brýnt er að allar stofnanir sem þannig er ástatt um afli trúnaðaryfirlýsinga frá verktökum.
 
Fyrri athugasemdir ítrekaðar

Í skýrslunni áréttar Ríkisendurskoðun athugasemdir sínar frá fyrri árum er varða áætlanir í virðisaukaskatti, skilgreiningu sértekna hjá stofnunum og löggjöf um skattastyrki. Þá er einnig ítrekuð ábending til Fjársýslu ríkisins um að efla yfirferð og afstemmingar viðskiptakrafna sem ekki hreyfast milli ára. Loks áréttar stofnunin þá skoðun sína að fella eigi Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta úr D-hluta ríkissjóðs. Sjóðurinn getur með engu móti talist eign ríkisins og það ber heldur ekki ábyrgð á skuldbindingum hans.
 
 
 
 
 
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BLEKHYLKI
Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ...
Toyota Yaris árg.2005
Til sölu, ekinn aðeins 56þ. sjálfsk., filmur, spoiler, álfelgur, sumardekk, bíll...
FUNDARLAUN FYRIR ÞENNANN HÚSBÍL!!!!!!!!!!!!!!!
200 þús. kall fyrir að segja til hvar þennan húsbíl er að finna. nafnaleynd! nú...
Hænsnahús til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...