Björgólfur: Ice Save skuldir lenda ekki á þjóðinni

Björgólfur Guðmundsson. stækka

Björgólfur Guðmundsson. mbl.is/Kristinn

Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi aðaleigandi og bankaráðsformaður Landsbankans, sagði í Kastljósi RÚV í kvöld að það væri misskilningur að skuldir vegna Ice Save reikninga bankans lentu á íslensku þjóðinni. Eignir bankans hefðu allt til síðasta dags verið mun meiri en skuldirnar.  Hann sagði að 30. september hefðu eignir bankans verið helmingi hærri en innlánsreikningar Ice Save þannig að jafnvel þótt eignir bankans hefðu rýrnað um helming hefði verið hægt að greiða út Ice Save innlánin.

Björgólfur sagði í samtali við Sigmar Guðmundsson að Landbankinn hefði ekki orðið gjaldþrota. Hann hefði hins vegar komist í greiðsluþrot vegna þess að Seðlabanki Íslands hefði ekki getað útvegað honum gjaldeyri.

Deilan lagasetningunni að kenna

Hann sagði að ekki væri að hægt að kenna Ice Save um deiluna sem komin er upp við Breta og Hollendinga heldur væri hún tilkomin vegna lagasetningar íslenskra stjórnvalda þess efnis að þau ætluðu tryggja innistæður sumra viðskiptavina en ekki allra; einungis þeirra sem ættu fé á reikningum hér heima en ekki erlendis. „Það er eins og við segðum að Reykvíkingar fengju sitt en Norðfirðingar ekki,“ sagði Björgólfur. „Deilan snýst um þetta; lagasetninguna sjálfa.“

Björgólfur nefndi að það væri eins og menn héldu að bankinn hefði stofnað Ice Save á bak við allt og alla en svo hafi vitaskuld ekki verið. „Ég held að fáir atvinnuvegir séu undir jafn miklu eftirliti og fjármálalífið. Við lögðum fram okkar plön og vorum í góðu samstarfi við fjármálaeftirlitið í Bretlandi og á Íslandi.“

Vildu fjölga stoðunum

Björgólfur sagði að íslenskir bankar hefðu verið orðnir stórir og hefðu kannski spilað djarft. En stefna ríkisstjórnarinnar og fleiri hefði verið að koma fleiri stoðum undir atvinnulífið og fjármálakerfið verið eitt af því sem mest var talið um í því sambandi. „Við reyndum að standa okkur en vorum kannski full stórir og hefðum átt að fara með hluta starfseminnar erlendis. En það var í góðri trú sem við unnum svona.“

Fengust aldrei til viðræðna

Sigmar spurði Björgólf um tilboð Landsbankamanna um sameiningu bankans, Glitnis og Straums, helgina áður en ríkið tók yfir Glitni; sagði að skv. því hefði hlutur eigenda Glitnis átt að verða rýr og spurði hvort tilboðið hefði verið sanngjarnt. Björgólfur svaraði því til að Landsbankinn hefði reyndar verið með hugmyndir frá því í vor um að sameina tvo eða þrjá banka, en umrædda helgi lagt fram tilboð sem Landsbankamenn hefðu talið sanngjarnt.  Hann sagði þá hafa gert sér grein fyrir því að ef ríkið tæki yfir Glitni myndi það „kyrkja“ alla bankastarfsemi á Íslandi enda hefðu allar lánalínur lokast um leið; hvorki bönkunum né ríkinu hefði verið treyst lengur.

Björgólfur bætti því við að hugmyndum Landsbankamanna hefði aldrei verið svarað. Hann sagði að þegar sendar væru slíkar tillögur ættu menn að tala saman en þeir hafðu aldrei fengið svar. „Þeir sem áttu að vernda hagsmuni þjóðarinnar fengust aldrei til viðræðna.“

Yfirlýsing Davíðs einsdæmi í heiminum

Davíð Oddsson sagði í Kastljósviðtali fyrir nokkrum vikum að Íslendingar myndu ekki greiða skuldir óreiðumanna í útlöndum. Þegar Sigmar spurði hvort Björgólfur hefði tekið orð Davíðs til sín - að hann væri óreiðumaður - svaraði hann neitandi. Hann sagði að eitt af því sem hefði gert málið erfitt væri yfirlýsingar manna sem hefðu ekki að átt að gefa yfirlýsingar. „Þessi yfirlýsing er líklega einsdæmi í heiminum,“ sagði Björgólfur Guðmundsson - og bætti við að hann vissi ekki við hvern Davíð hefði átt; kannski félaga sína í Seðlabankanum, í ríkisstjórninni eða annars staðar í kerfinu.

Björgólfur Guðmundsson fyrrverandi formaður bankastjórnar Landsbankans.

Björgólfur Guðmundsson fyrrverandi formaður bankastjórnar Landsbankans. Sverrir Vilhelmsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HONDA CR-V VARAHLUTIR 1998-2001+Hyunday Tuson hedd
Á til notaða varahluti í Honda cr-v 1997-2001 td. drif toppgrind,hedd og margt s...
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
Til sölu tjaldvagn
Ægisvagn, árgerð 2006, notaður fyrst 2007 og sama og ekkert eftir það. Yfirbreið...
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...