VG mótmælir frumvarpi um fjármálafyrirtæki
Þingmenn VG mótmæltu því harðlega undir kvöld, að frumvarp um fjármálafyrirtæki yrði tekið til þriðju umræðu. Samkvæmt frumvarpinu getur skiptastjóri þrotabús fjármálafyrirtækis m.a. annast áfram tiltekna leyfisbundna starfsemi þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið hafi afturkallað starfsleyfi fyrirtækisins.
Meirihluti viðskiptanefndar þingsins lagði í dag fram breytingartillögur við frumvarpið sem m.a. gera ráð fyrir að óheimilt verði að höfða dómsmál gegn fjármálafyrirtæki meðan á greiðslustöðvun þess stendur, nema mælt sé sérstaklega fyrir um heimild til þess í lögum eða um sé að ræða opinbert mál og refsiviðurlaga sé krafist. Þá sé heimilt að fresta meðferð dómsmáls gegn fjármálafyrirtæki meðan á greiðslustöðvun þess stendur. Markmiðið með þessu sé að tryggja, að fjármálafyrirtæki í greiðslustöðvun þurfi ekki að óttast málshöfðun íslenskra eða erlendra kröfuhafa meðan á greiðslustöðvuninni stendur og unnið sé að því að tryggja verðmæti eigna fyrirtækisins.
Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG, sagði að frumvarpið hefði ekki hlotið þá umfjöllun í meðferð þingsins, sem flokkurinn teldi æskilega en í nefndaráliti fulltrúa flokksins í viðskiptanefnd þingsins segir m.a. að réttarfarslegt slys sé í uppsiglingu með samþykkt frumvarpsins. Því væri rétt að fresta afgreiðslu málsins. Sagðist Ögmundur mótmæla því að málinu yrði þröngvað gegnum þingið með þessum hætti.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að frumvarpið hefði verið til umræðu í viðskiptanefnd þingsins frá því á föstudag. Hins vegar lægi á að setja þessa löggjöf til að bjarga verðmætum, verja eignir bankanna og koma í veg fyrir að þær verði kyrrsettar í Evrópu. Með ólíkindum væri að enn stjórnmálaflokkur reyndi að koma í veg fyrir það.
Ögmundur sagði að í frumvarpinu fælust álitamál sem vörðuðu stjórnarskrá landsins og hagsmuni íslensku þjóðarinnar og ekki væri sæmandi að Alþingi reyndi að þröngva málinu í gegn án nægrar umfjöllunar.
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, sagði hins vegar að fyrir lægi nefndarálit bæði frá meirihluta og minnihluta viðskiptanefndar og því væri fyllilega eðlilegt að frumvarpið kæmi til þriðju umræðu nú.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 14. nóvember 2008, Innlent Deilt um lög um fjármálafyrirtæki
- Mánudagur, 23. febrúar 2009, Innlent Vilja fresta seðlabankaumræðu
- Mánudagur, 9. febrúar 2009, Innlent Varaði þingforseta við stjórnarskrárbrotinu
- Mánudagur, 6. október 2008, Innlent Víðtækar heimildir til inngripa
- Mánudagur, 3. desember 2007, Innlent VG mótmælir harðlega frumvarpi um þingsköp
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































