Vakti mismikla lukku

Paddan vakti mikla athygli á leikskólanum.
Paddan vakti mikla athygli á leikskólanum. Leikskólinn Sólborg

Óvæntur gestur spratt upp á leikskólanum Sólborg á Ísafirði í morgun. Barst hann til leikskólans í ávaxtakassa. Talið er að um engisprettu sé að ræða.

„Heimsóknin vakti mismikla lukku! Við teljum þetta vera engisprettu, en ætlum að senda hann til Náttúrugripasafnsins í Bolungarvík til frekari greiningar“, sagði Guðrún Birgisdóttir, aðstoðarleikstjóri skólans í samtali við fréttavefinn bb.is.

Börnin skoðuðu kvikindið gaumgæfilega.
Börnin skoðuðu kvikindið gaumgæfilega. Leikskólinn Sólborg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert