Gríðarlegt áfall fyrir Eyjamenn

Frá Vestmannaeyjum.
Frá Vestmannaeyjum. mbl.is/Brynjar Gauti

„Þetta er alveg gríðarlegt áfall fyrir okkur. En við erum búin að óttast það núna síðustu tvær til þrjár vikur að svona kynni að fara,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri spurður út í þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar hætt skuli við frekari samningaviðræðum um smíði nýs Herjólfs.

„Það er búið að búið að tvífresta því að svara tilboðinu. Þannig að við óttuðumst þessa stöðu,“ segir Elliði.

Hann segir smíði nýrrar ferju vera langstærsta hagsmunamál samfélagsins í Vestmannaeyjum. Eyjamenn búi við mjög erfiða stöðu þar sem flug á Bakkaflugvelli hafi verið lagt niður yfir vetrartímann. „Það voru 30.000 farþegar sem ferðuðust í gegnum Bakkaflugvöll á seinasta ári. Herjólfur er orðinn 16 ára gamall. Hann er bilaður í dag, sem þýðir það að hann þarf að fara í slipp,“ segir Elliði.

Hann segir að mjög mörg sveitarfélög, þ.m.t. Vestmannaeyjabær, séu að vinna áætlanir sínar þannig að allar forsendur verði endurskoðaðar í mars.

„Ég reikna með því að ríkið sé að gera slíkt hið sama að þeir séu að fresta þessu c.a. fram í mars og þá verði þetta endurmetið. Þannig ég er að vona að menn sjái það að við getum ekki frestað þessu í langan tíma þótt við höfum skilning á erfiðri stöðu. Þá hlýtur ríkið að halda úti grunnþjónustu eins og samgöngum,“ segir Elliði og bætir við: „Ég ef óskað eftir því að stýrihópur um þessa framkvæmd, sem ég á sæti í, hittist núna strax eftir helgi. Það þarf að fara yfir hvaða aðrar leiðir eru mögulegar,“ segir Elliði í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert