Milliríkjadeilunni verður að ljúka

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. mbl.is/Ómar

„Við vonumst til þess að þessi deila sé að leysast. Þetta er einhver erfiðasta milliríkjadeila sem við höfum átt í. Það er mjög nauðsynlegt að það finnist lausn á henni til þess að það geti orðið eðlileg viðskipti milli Íslands og umheimsins,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.

Hún segir að mikilvægt að Ísland nái tökum á þeim eignum sem hafa verið frystar í Bretlandi og gera sér mat úr þeim. „Þessari milliríkjadeilu verður að ljúka,“ segir Ingibjörg Sólrún.

Búið er að boða til blaðamannafundar kl. 16 í dag. „Við erum með mörg mál í gangi samtímis eins og hefur verið í þessu undanfarnar vikur. Það er er að greiðast aðeins úr þessu, finnst mér. Eitt mál í einu að leysast,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum í dag.

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir að ríkisstjórnin geri sér vonir um að skuldir vegna Icesave-reikninga bankans lendi ekki á íslensku þjóðinni „því að eignir bankanna standi algjörlega undir því,“ segir Björgvin og bætir við að það sé ekki hægt að fullyrða um slíkt að svo stöddu. Það verði ekki hægt fyrr en eignamatið liggi fyrir. „Það mun taka ákveðinn tíma að lenda því, en flestir bendir til þess, já, að það geri það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert