Sveitarfélög án bakhjarls í slæmum vanda
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is
Sveitarfélög sem átt hafa í rekstrarvanda á undanförnum árum munu lenda í verulegum vandræðum á næstunni. Þetta sagði Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, á fjármálaráðstefnu þess í gær. Sagði hann útlitið ekki gott í rekstri sveitarfélaga á næsta ári, 30 milljarða rekstrarhalli skv. áætlunum sambandsins eða 20% af tekjum sveitarfélaganna. Þetta er algjört hrun í afkomu þeirra frá síðustu árum. Sveitarfélög mega ekki, lögum samkvæmt, gera ráð fyrir halla í fjárhagsáætlunum.
Árni Mathiesen fjármálaráðherra sagði á ráðstefnunni að heildartekjur ríkissjóðs drægjust saman um fjórðung á milli þessa árs og næsta, ekki síst þar sem stofnar tekjuskatts og fjármagnstekna rýrnuðu um meira en helming. Hann sagði ríkissjóð ekki aflögufæran um að rétta sveitarfélögin af. Fátt annað blasti því við en niðurskurður, enda sagði Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, stöðuna þá verstu sem hefði sést. Sveitarfélög þyrftu að leita á náðir ríkisins. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sagði að risastórt pólitískt loforð væri að segjast standa vörð um grunnþjónustu borgarinnar í núverandi ástandi.
Kristján Möller, ráðherra málefna sveitarfélaga, hefur látið breyta reglum um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, svo að hún byrjar ekki sjálfkrafa á aðgerðum þótt henni berist fjárhagsáætlanir sem sýna hallarekstur hjá sveitarfélögum 2009. Þess í stað á hún að skoða slíkar áætlanir heildstætt og í ljósi ástandsins.
Kristján sagði á ráðstefnunni í gær að upplýsinga hefði verið aflað um fjárhagslega stöðu allra sveitarsjóða núna. „Markmiðið er að reyna að fá heildarmynd af fjárhagslegri stöðu allra sveitarfélaga í landinu,“ sagði Kristján á ráðstefnunni í gær. Um 90% sveitarfélaga hafa skilað inn upplýsingum. Kristján tjáði Morgunblaðinu í gær að ekkert þeirra væri komið í svo alvarlega stöðu að farið væri að ræða um róttækar aðgerðir á borð við greiðslustöðvun, stórkostlega hækkun útsvars eða sameiningu við önnur byggðarlög.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 13. nóvember 2008, Innlent Sveitarfélög í kröggum
- Fimmtudagur, 6. nóvember 2008, Innlent Vinna að lausnum á vandamálum
- Fimmtudagur, 13. nóvember 2008, Innlent Ríkissjóður ekki aflögufær
- Fimmtudagur, 14. maí 2009, Innlent Staða sveitarfélaga verri en áætlað var
- Miðvikudagur, 3. desember 2008, Innlent Erfið varnarbarátta fyrir grunnþjónustu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































