Framsókn: Ríkisstjórnin hvetur til viðskiptalegs siðrofs

Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins og Geir H. Haarde forsætisráðherra á Alþingi á dögunum. stækka

Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins og Geir H. Haarde forsætisráðherra á Alþingi á dögunum. Ómar Óskarsson

Miðstjórn Framsóknarflokksins varar við þeirri leið sem ríkisstjórnin leggur fram til stuðnings fjölskyldum og heimilum í landinu. Þetta kemur fram í stjórnmálaályktun miðstjórnar flokksins í gær.

Þar segir m.a.: „Fólk leggur mikið á sig til að standa við skuldbindingar sínar á erfiðum tímum. Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar hvetja til vanskila í stað þess að gera fólki auðveldara að standa í skilum með skuldbindingar sínar. Í raun er ríkisstjórnin að hvetja til viðskiptalegs siðrofs og vanskila sem leiðar út úr vandanum. Leið ríkisstjórnarinnar, að gera stóran hluta þjóðarinnar að vanskilamönnum, er alger uppgjöf gagnvart verkefninu.“

Miðstjórn Framsóknarflokksins telur að aðstæður í samfélaginu kalli á endurmat í íslensku samfélagi. „Framsóknarflokkurinn þarf að eiga frumkvæði í því endurmati. Þar þarf að halda fram hugsjónum flokksins í bráð og lengd af bjartsýni og festu. Í þeirri vinnu þarf að leggja rækt við samvinnu og félagsleg og mannleg gildi. Að þeirri vinnu þurfa sem flestir flokksmenn að koma, auk utanaðkomandi aðila. Framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins er falið að setja þá vinnu af stað,“ segir m.a. í ályktuninni.

Stjórnmálaályktun miðstjórnarfundarins er birt hér í heild sinni:

Núverandi staða

Íslenskt efnahagslíf stendur nú frammi fyrir meiri vanda en það hefur nokkru sinni gert áður á lýðveldistímanum. Við blasir hrun bankakerfisins, algjört vantraust á gjaldmiðli þjóðarinnar, veruleg eignaskerðing lífeyrissjóðakerfisins, stórfellt atvinnuleysi, eignatap einstaklinga og fyrirtækja og að skuldir heimila og fyrirtækja eru að sliga rekstur þeirra og framtíðarmöguleika. Ljóst er að mikill halli mun verða á fjárlögum ríkissjóðs og að skuldir hans munu margfaldast á næstu árum.

Ólögmætar árásir bandalagsþjóða á íslenska hagsmuni eru fordæmalausar og ólíðandi, enda eiga samskipti við nágranna- og viðskiptaþjóðir að grundvallast á þeim alþjóðasamningum sem Íslendingar eru aðilar að. Nauðsynlegt er að stjórnvöld landsins standi fast gegn öllum öðrum kröfum en þeim sem þjóðinni ber lögum samkvæmt að gangast undir og hiki ekki við að leita niðurstöðu dómstóla ef þurfa þykir.

Við þessar aðstæður er óþolandi með öllu að við völd situr ríkisstjórn sem, þrátt fyrir mikinn þingmeirihluta, er ósamstíga og sundurleit. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa ástundað vinsældakapphlaup í stað ábyrgrar samstöðu á erfiðum tímum og nauðsynlegar aðgerðir til að bregðast við aðsteðjandi vanda reka á reiðanum. Framsóknarmenn hafa í rúmt ár varað mjög við þeirri stöðu sem þjóðarbúið er nú komið í og þeim óveðursskýjum sem stefndu að landinu erlendis frá. Þannig lýsti forsætisráðherra því m.a. í skýrslu sinni um efnahagsmál 2. september s.l. að þær efnahagsþrengingar sem væru framundan „væru vissulega krefjandi verkefni en ekki neyðarástand eða raunveruleg kreppa eins og Íslendingar kynntust fyrr á árum” og að við þyrftum „öll að búa okkur undir tímabundnar fórnir og minnkandi kaupmátt um hríð”. Skyldi forsætisráðherra enn vera sömu skoðunar? Miðstjórn Framsóknar lýsir því yfir vantrausti á þá ríkisstjórn sem nú situr.

Nauðsynlegar aðgerðir

Þrátt fyrir mikil áföll er Ísland land tækifæranna og framtíðin er björt, ef rétt er haldið á málum. Endurreisa þarf traust milli
ríkisstjórnar, Alþingis, stofnana þjóðfélagsins og þjóðarinnar. Miðstjórn Framsóknarflokksins varar sterklega við því að brugðist verði við núverandi efnahagskreppu með höftum, hækkun skatta eða öðrum þeim aðgerðum sem hindra kunna viðskipti eða fjármagnsflutninga milli landa. Framsóknarflokkurinn telur að á næstu vikum og misserum sé mikilvægt að ráðist verði í viðamiklar skammtíma- og langtímaaðgerðir til styrktar almenningi og fyrirtækjum í landinu.

Brýnustu aðgerðir eru eftirfarandi:

• Uppbygging markvissrar útflutningsstefnu í atvinnulífinu. Íslendingar eru háðari alþjóðaviðskiptum en flestar aðrar
þjóðir. Framtíðarhagvöxtur Íslands þarf að byggjast á útflutningi vöru og þjónustu sem tekur mið af hæsta mögulega virðisauka í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Einn mikilvægasti þáttur í útflutningsstefnunni þarf að vera stuðningur við
nýsköpun í gegnum rannsóknar- og þróunarstarf innan veggja fyrirtækja, háskóla og opinberra stofna og með stuðningi við sprotafyrirtæki.

• Hlúa þarf að innlendri framleiðslu landbúnaðarvara. Ljóst er að þeir umbrota- og óvissutímar sem nú ríkja kalla á ný sjónarmið varðandi landbúnaðarframleiðslu á Íslandi. Miðstjórn Framsóknarflokksins minnir á nauðsyn þess að íslenskur landbúnaður búi við þau starfsskilyrði að hann geti framleitt og tryggt þjóðinni helstu nauðsynjar á sviði matvæla.

• Mikilvægt er að ekki verði hróflað við stjórnkerfi fiskveiða við núverandi aðstæður. Miðstjórn telur samt nauðsynlegt að
undirbúa aðlögun kerfisins að áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki sem og önnur fyrirtæki landsins þurfa að búa við öryggt rekstrarumhverfi að svo miklu leyti sem hægt er. Veiðar, vinnsla og útflutningur sjávarafurða gegna lykilhlutverki í að leiða þjóðina upp úr þeim djúpa öldudal sem hún er nú í.

• Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins telur að tilraunir með að halda úti minnsta sjálfstæða gjaldmiðli heimsins hafi  beðið skipbrot. Misráðnar ákvarðanir seðlabankastjóra vega ekki hvað síst þungt í þeim efnum og blasir því við að víkja þarf bankastjórn Seðlabanka Íslands og yfirstjórn Fjármálaeftirlits frá störfum og endurskoða stjórnkerfi þessara stofnana og þá peningamálastefnu sem þjóðin þarf að búa við næstu misserin. Tiltrú alþjóðasamfélagsins á íslensku krónunni er enginn sem lýsir sér m.a. í gríðarlegu gengisfalli með tilheyrandi verðbólguvexti, skuldasöfnun heimila og fyrirtækja, fyrirsjáanlegri gjaldþrotahrinu, atvinnuleysi og landflótta. Þessu þarf að bregðast við af fullri alvöru með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi.

• Skoða þarf allar mögulegar leiðir til að afnema hina umfangsmiklu vísitölubindingu sem nú ríkir í fjármálakerfinu. Ekkert þróað hagkerfi býr við jafn umfangsmikla vísitölubindingu og hið íslenska. Ljóst að áframhaldandi notkun hennar mun verulega takmarka notkun þeirra hagstjórnartækja sem við höfum til að ná hagkerfinu upp úr efnahagslægðinni. Samtímis er hins vegar nauðsynlegt að benda á mikilvægi þess að tryggja hagsmuni sparifjáreigenda í þjóðfélaginu, þar sem innlendur sparnaður verður undirstaða fjárfestinga í atvinnulífinu á næstu árum.

• Huga þarf vel að börnum og fjölskyldum landsins. Ríki og sveitarfélög eiga að leita leiða til þess að fjölskyldan og
einstaklingarnir geti borið höfuðið hátt og haldið reisn sinni í þeim erfiðleikum sem að steðja. Í ljósi þess er mikilvægt að efla alhliða forvarnir. Skoða ber ítarlega þá kosti sem í boði eru til að létta undir með fjölskyldum landsins, eins og að bjóða skuldbreytingu á vísitöluhækkun lána næstu 12 mánuði. Miðstjórn Framsóknarflokksins leggur áherslu á að sveitarfélögunum verði gert mögulegt að sinna mikilvægum nærþjónustuverkefnum sem sífellt verður meiri þörf fyrir. Þau þarf hugsanlega að útvíkka, t.d. með fríum skólamáltíðum eða lækkun kostnaðar við dagvistun. Því má ekki fella á brott 1,4 milljarða viðbótarframlag ríkisins í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

• Ráðast þarf strax í endurskipulagningu bankakerfisins með það að markmiði að koma eignarhaldi þeirra sem fyrst úr ríkiseigu. Mikilvægt er að við sölu bankanna verði sérstaklega gætt að því að slíkt ferli verði gegnsætt og tryggi hagsmuni almennings í landinu. Miðstjórn Framsóknarflokksins bendir á kosti þess að hluti bankakerfisins sé í erlendri eigu.

• Miðstjórn Framsóknarflokksins krefst þess að settar verði skýrar og gegnsæjar reglur um hvernig farið verður með afskriftir skulda og skuldbreytingar viðskiptavina nýju ríkisbankanna og varar sterklega við þeirri hættu sem hefur skapast á að eignum ríkisbankanna kunni að verða ráðstafað á grundvelli pólitískra tengsla en ekki á viðskiptalegum forsendum.

• Efla þarf starfsemi Íbúðarlánasjóðs, t.d. með því að rýmka reglur um endurbótalán til einstaklinga og sveitarfélaga til viðhalds á eigin húsnæði. Hins vegar ber að varast að leggja á Íbúðalánasjóð of þungar byrðar með yfirfærslu lána úr bankakerfinu, sem fóru langt fram yfir veðheimildir og hámarkslán eins og þau voru á hverjum tíma.

• Leggja þarf í sérstakt átak til að bæta ímynd Íslands erlendis með markvissu kynningarstarfi. Ljóst er að ímynd Íslands hefur beðið mikinn hnekki á undanförnum vikum og allskyns ranghugmyndir eru í gangi um hver sé ábyrgð ríkissjóðs Íslands á skuldbindingum sem íslensku bankarnir stofnuðu til erlendis, þá í einkarekstri. Ef ekki verður gripið til markvissra aðgerða nú þegar er hætta á að viðskiptahagsmunir annarra íslenskra fyrirtækja og alls óskyldra kunni að skaðast verulega.

• Vegna mikilla umbrota í íslensku efnahagslífi er mikilvægara en áður að efla símenntun, verkmenntun og  fullorðinsfræðslu. Miðstjórn Framsóknarflokksins hvetur til þess að þetta sé unnið í samvinnu við verkalýðshreyfinguna og Samtök atvinnulífsins.

Miðstjórn Framsóknarflokksins varar við þeirri leið sem ríkisstjórnin leggur fram til stuðnings fjölskyldum og heimilum í
landinu. Fólk leggur mikið á sig til að standa við skuldbindingar sínar á erfiðum tímum. Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar hvetja til vanskila í stað þess að gera fólki auðveldara að standa í skilum með skuldbindingar sínar. Í raun er ríkisstjórnin að hvetja til viðskiptalegs siðrofs og vanskila sem leiðar út úr vandanum. Leið ríkisstjórnarinnar, að gera stóran hluta þjóðarinnar að vanskilamönnum, er alger uppgjöf gagnvart verkefninu.

Miðstjórn Framsóknarflokksins telur að aðstæður í samfélaginu kalli á endurmat í íslensku samfélagi. Framsóknarflokkurinn þarf að eiga frumkvæði í því endurmati. Þar þarf að halda fram hugsjónum flokksins í bráð og lengd af bjartsýni og festu. Í þeirri vinnu þarf að leggja rækt við samvinnu og félagsleg og mannleg gildi. Að þeirri vinnu þurfa sem flestir flokksmenn að koma, auk utanaðkomandi aðila. Framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins er falið að setja þá vinnu af stað.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BÆKUR ,TÍMARIT,MATREIÐSLUBÆKUR OG LP. PLÖTUR TIL SÖLU
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?badvid=28470738&showAdvid=284707...
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005 , ekið 4.700 km. , er á nýjum Bigho...
Til sölu ljósakróna
Mjög vel með farin ljósakróna frá Home Art kr. 5000,- Upplýsingar í síma 6633-0...
Upphengi fyrir reiðhjól
Upphengi fyrir 10 reiðhjól á 3 mtra rennibraut. verð kr.37000 Upplýsingar í sím...
 
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....