90 ökutæki nýskráð í nóvember

mbl.is

Alls voru 17.265 ökutæki nýskráð á tímabilinu frá 1. janúar 2008 til 14. nóvember. Er þetta 36,3% fækkun nýskráninga milli ára. Á fyrstu tveimur vikunum í nóvember voru 90 ökutæki nýskráð en á sama  tímabili í fyrra voru þau 1.083.

Umferðarstofa hefur tekið saman yfirlit yfir nýskráningar ökutækja og eigendaskipti á tímabilinu frá 1. janúar 2008 til 14. nóvember 2008. Hafa skal í huga að hér er um að ræða nýskráningu og eigendaskipti allra ökutækja ekki bara bifreiða, að því er segir í tilkynningu.

Eigendaskipti ökutækja á sama tímabili þessa árs eru 75.450 en þau voru 94.406 eftir jafn marga skráningardaga á síðasta ári. Hlutfallsleg lækkun eigendaskipta nemur því 20,1% milli ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert