Fólk óttast að missa húsin sín
F.v.: Kristján Gunnarsson fundarstjóri, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Ingibjörg Guðmundsdóttir varaforseti ASÍ og Guðbrandur Einarsson formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja á fundinum í kvöld. Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Ágætis mæting var á fyrsta fundinum í fundaherferð ASÍ sem haldinn var í Fjölbrautarskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ í kvöld. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ var þar með framsögu og Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja ávarpaði fundinn. Yfirskrift herferðarinnar er Áfram Ísland - fyrir hag heimilanna.
„Þetta var líflegur fundur og heilmiklar umræður,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson eftir fundinn. „Fólki liggja mikið á hjarta áhrif verðtryggingarinnar og hækkun lána. Það voru skiptar skoðanir um hvaða áhrif það myndi hafa að afnema eða frysta verðtryggingu. Á endanum held ég að menn hafi verið sammála um að leiðin út úr þessum ógöngum sé að fólgin í því að fá breiðara og sterkara efnahagskerfi. Áhersla okkar á upptöku evrunnar tengist þessu æði mikið.“
„Það hefði mátt vera betri mæting en var þó ágætis mæting. Ég hefði viljað sjá fleiri á fundinum,“ sagði Guðbrandur Einarsson. Hann sagði að fundarmönnum hafi verið mikið niðri fyrir. „Það sem fólk er fyrst og síðast að velta fyrir sér er hvort að það haldi yfirhöfuð húsunum sínum. Hvort verðtryggingin hangi þannig um hálsinn á fólki að það tapi eignum í ljósi þeirrar verðbólgu sem við sjáum framundan. Fólk er óttaslegið út af því.“
Guðbrandur sagði bjarta punktinn vera þann að við eigum möguleika á stöðugleika hér líkt og annars staðar. „Innganga í Evrópusambandið muni leiða til þess að við munum ganga inn í sama stöðugleikaumhverfi og aðrar Evrópuþjóðir búa við. Það er að verða mjög hávær krafa landsmanna að okkur verði boðið upp á sams konar stöðugleika. Maður fann það á fundarmönnum að það er greinilegur vilji til þess.“
Fundurinn samþykkti ályktun þar sem stjórnvöld voru m.a. hvött til að standa vörð um hagsmuni heimilanna. Komið yrði í veg fyrir að fólk lendi í alvarlegum greiðsluerfiðleikum eða missi ofan af sér. Jafnframt var brýnt fyrir stjórnvöldum að taka afstöðu til Evrópusambandsins og upptöku evrunnar og að tryggja að fólki hér standi til boða sambærileg húsnæðislán og bjóðast í nágrannalöndunum.
Næsti fundur í fundaherferð ASÍ verður í Grundaskóla á Akranesi á morgun, 19. nóvember, og hefst hann kl. 20.00.
|
|
Ályktun fundar stéttarfélaga í Reykjanesbæ |
Bloggað um fréttina
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm Takmarkaður skilningur -
Ásdís Sigurðardóttir Ætli þeir færi okkur gull og græna skóga?? -
Jóhannes Ragnarsson Skrifstofusjakalar og sníkjudýr -
Björn Heiðdal Gylfi í boði Bónus? -
Einar Vignir Einarsson Mig langar að vita fyrir hvern er ASI að vinna?? -
María Guðmundsdóttir ASÍ fundur í Reykjanesbæ. -
Katrín Linda Óskarsdóttir VINIR LÁGLAUNAMANNSINS???? -
Guðmundur Ragnar Björnsson Er Gylfi að berjast fyrir Baug, Samfylkinguna eða verkalýðinn eins ... -
Bergur Thorberg Var rætt um spillinguna í verkalýðshreyfingunni? -
Hákon Evra smerva -
Halldór Jónasson Er ekki bara alveg ágætt að fá evru og ganga ... -
Jóhann Elíasson ASÍ er ekki lengur málsvari láglaunafólks !!!!!!!! -
Jón Aðalsteinn Jónsson Verkalýðshreyfing á villigötum -
Gunnar Ársæll Ársælsson Hættum að borga reikninga okkar. -
Kristján H Theódórsson Verðtryggingaraðallinn á yfirreið!
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. mars 2009, Innlent Fundað um velferðarmál
- Miðvikudagur, 7. maí 2008, Innlent Vísa gagnrýni Haga á bug
- Mánudagur, 9. febrúar 2009, Innlent „Mjög góður fundur“
- Sunnudagur, 5. október 2008, Innlent Miðstjórn ASÍ boðuð til fundar
- Þriðjudagur, 24. mars 2009, Innlent Aukaársfundur ASÍ á morgun
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































