Lýst eftir vinningshafa

Íslensk getspá hefur ákveðið að lýsa eftir einum af þeim fjórum sem skiptu með sér pottinum í lottóinu síðastliðinn laugardag. Alls komu rúmar tvær milljónir í hlut hvers vinningshafa. Var miðinn keyptur hjá Skeljungi við Suðurströnd á Seltjarnarnesi síðdegis á laugardag. 

Segir í tilkynningu að einn af þeim heppnu er nýbúinn að klára nám erlendis, nýfluttur heim, og var mjög ánægður með fréttirnar þegar að hann fékk hringingu frá Íslenskri getspá með að hann hefði unnið á áskriftarmiðann sinn sem hann hefur lengi haft. 

Annar heppinn sem keypti sinn miða á lotto.is hafði ætlað að kaupa sér miða í Víkingalottóinu á miðvikudag en valdi óvart að kaupa miða í laugardagslottóinu og hafði heldur betur heppnina með sér.  Einnig var vinningsmiði seldur í Þristinum við Seljabraut í Breiðholti og fór sá vinningur til fjölskyldu sem er búsett í Breiðholti. 


 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert