Presturinn breytti ekki siðferðilega rétt

stækka

mbl.is/Sigurður Ægisson

Sóknarprestur á Akureyri breytti ekki siðferðilega rétt þegar hann skírði sjö ára barn án samþykkis foreldris. Foreldrar barnsins fóru með sameiginlega forsjá og lét móðirin skíra barnið að föðurnum forspurðum. Áfrýjunarnefnd þjóðkirkjunnar telur að prestinum hafi borið siðferðileg skylda til að leita eftir samþykki eða afstöðu föðurins.

Barnið var skírt í Akureyrarkirkju í febrúar síðastliðnum en þá var barnið sjö ára. Foreldrarnir voru skilin, faðirinn bjó fyrir sunnan en móðirin fyrir norðan. Foreldrar barnsins fóru með sameiginlega forsjá en barnið átti  lögheimili hjá föður sínum fyrir sunnan. Bæði móðir og barn voru skráð í Kaþólsku kirkjuna en faðirinn hefur haft sterkar skoðanir á þjóðkirkjunni og skírn og var mótfallinn skírn barnsins.

Faðirinn kærði til úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar sem taldi að prestinum hefði ekki verið óheimilt að skíra barnið. Ekki væri ekki hægt að úrskurða skírnina marklausa eða óleyfilega. Þá var bótaskyldu hafnað og sömuleiðis því að grípa til úrræða gagnvart prestinum.

Faðirinn áfrýjaði til áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar. Nefndin telur prestinn ekki hafa breytt siðferðilega rétt. Prestinum hafi mátt vera ljóst að faðir og móðir færu með sameiginlega forsjá, barnið ætti lögheimili hjá föður sínum, að faðrinn hefði sterkar skoðanir á þjóðkirkjunni og skírn á vegum hennar, sem gætu vala talist jákvæðar og loks að móðir og dóttir tilheyrðu öðru trúfélagi.

Nefndin telur að það hafi verið í þágu barnsins að skíra það til kristinnar trúar en draga verði í efa að það hafi verið því fyrir bestu að taka skírn í andstöðu  við föður sinn.

Áfrýjunarnefndin segir hugtakið siðferðisbrot hafa mjög óljósa merkingu í lagamáli. Ganga megi að því vísu að siðferðisbrot þurfi ekki að vera refsivert brot að lögum, jafnvel ekki neins konar réttarbrot. Siðferðisbrot þurfi ekki heldur að vera svívirðilegt  að almenningsáliti.

Nefndin hafnar kröfum föðurins um að skírnin verði úrskurðuð marklaus eða óleyfileg og vísar frá bótakröfum hans á hendur Þjóðkirkjunni.

Áfrýjunarnefndin hafnar því , líkt og úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar, þeirri kröfu föðurins að grípa til aðgerða gagnvart prestinum.

Úrskurðarorð áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar:

Séra Svavar Alfreð Jónsson breytti ekki siðferðilega rétt í skilningi 1. mgr. 12. gr. laga nr. 78/1997 þegar hann skírði dóttur kæranda hinn 2. febrúar 2008.

Staðfest er sú ákvörðun úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar að hafna kröfu kæranda um að grípa til viðeigandi úrræða gagnvart séra Svavari.

Þeim kröfum kæranda, að skírn sú, sem að framan greinir, verði úrskurðuð marklaus eða óleyfileg og að hann eigi bótakröfu á hendur þjóðkirkjunni vegna skírnarinnar, er vísað frá.

Kirkjumálasjóður skal greiða allan kostnað áfrýjunarnefndar við uppkvaðningu úrskurðar þessa.

Reykjavík, 20. október 2008
Eiríkur Tómasson, Ásdís J. Rafnar, Lára G. Hansdóttir, Pétur Pétursson, Salvör Nordal.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bílum er lagt meðfram heimreiðinni að Bessastöðum.

Margt um manninn á Bessastöðum

16:17 Margir hafa ákveðið að grípa tækifærið og heimsækja Bessastaði og Bessastaðakirkju sem eru opin almenningi í dag milli kl. 16 og 20. Opnunin er í tilefni Safnanætur og Vetrarhátíðar í Reykjavík. Meira »
Samningurinn var undirritaður í dag.

Tilraunaverkefni í vinnumiðlun

16:14 Í dag var undirritað samkomulag um að setja í gang tilraunaverkefni sem hefur að markmiði að auka og efla vinnumiðlun, ráðgjöf og þjónustu við atvinnuleitendur. Það mun ná til um 25% atvinnuleitenda á landinu. Stefnt er að því að verkefnið hefjist í byrjun maí. Meira »

Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu

Frá stofnfundi Samstöðu, stjórnmálaflokks undir forystu Lilju Mósesdóttur.
16:06 Stéttarfélagið Samstaða í Húnavatnssýslum gerir athugasemd við nafn nýs flokks Lilju Mósesdóttur sem ber nafnið Samstaða.  Meira »

Stefna að opnun í Skálafelli

Stefnt er að því að opna í skíðasvæðið í Skálafelli.
16:03 Borgarráð hefur samþykkir að beina því til stjórnar skíðasvæðanna að hefja viðræður við skíðadeild KR um að deildin sjái um rekstur svæðisins. Meira »

Skipulagsmálum víða áfátt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
15:57 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ekki sé rétt að hús hafi verið rifin í borginni Bakú í Aserbaídsjan vegna byggingar Kristalshallarinnar. Hann segir að nóg sé að fara í miðbæ Reykjavíkur til að finna fólk sem búi í óvissu um nánasta umhverfi sitt og í grennd við hús sem séu látin drabbast niður. Meira »

Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna

Séð yfir Skeiða- og Gnúverjahrepp.
16:04 Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að lækka starfshlutfall oddvita og að ræða við Kristófer Arnfjörð Tómasson viðskiptafræðing, um að taka að sér framkvæmdastjórastöðu hjá sveitarfélaginu. Meira »

Boðuð á fund í Reykjavík

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir
16:00 Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa reynt að fá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, norður á fund vegna alvarlegra stöðu í byggðamálum. Samtökin hafa nú verið boðuð á fund í Reykjavík ásamt öðrum fulltrúum landshlutasamtaka. Meira »

Bleikjueldi ekki háð umhverfismati

15:47 Eldi á allt að 200 tonnum af bleikju á ári í Galtalæk, Rangárþingi ytra, er ekki háð mati á umhverfisáhrifum að mati Skipulagsstofnunar. Íslensk matorka rekur fiskeldisstöðina í Galtalæk. Meira »

Ekið á stúlku á Akureyri

15:38 Ekið var á stúlku á Mýrarvegi á Akureyri um hádegisleytið í dag. Stúlkan sagði við bílstjórann að hún væri ómeidd og hélt hann því leiðar sinnar. Skömmu síðar kom í ljós að hún var með minniháttar meiðsli á fæti. Meira »

Bjóða brúðhjónunum til Íslands

15:25 Iceland Express ætlar að bjóða breskum brúðhjónum til Íslands en parið varð fyrir því að brotist var inn hjá því á brúðkaupsnóttina og peningum sem ætlaðir voru í brúðkaupsferð til Íslands stolið. Brúðurin fór að gráta af gleði er hún fékk símtalið frá Iceland Express. Meira »

Karl biskup í Kenía

Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands.
15:34 Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands hefur undanfarna tvo daga heimsótt starfssvæði íslenskra kristniboða í Pókothéraði í Keníu ásamt Jónasi Þórissyni framkvæmastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar. Meira »

Um 65% með leka púða

Búið er að skoða um 100 konur sem eru með PIP-púða.
15:16 Rúmlega 100 konur sem erum með PIP-brjóstapúða eru búnar að koma í ómskoðun hjá Krabbameinsfélaginu. Um 65% þeirra eru með leka púða. Meira »

Veita Hvít-Rússum aðstoð

Rauði krossinn aðstoðar fólk í Hvíta-Rússlandi
14:50 Rauði kross Íslands hefur sent neyðarstyrk sem nemur tveimur milljónum króna til aðstoðar fórnarlömbum kuldabylgjunnar í Hvíta-Rússlandi en frost í landinu hefur farið niður fyrir þrjátíu gráður á síðustu vikum. Meira »

Er hóflega bjartsýnn

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er nú staddur í Bretlandi.
14:42 Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra fór yfir stöðuna í makríldeilunni með sjávarútvegsráðherra Bretlands á fundi í Lúndunum í gær. „Ég skynjaði alveg sama áhuga á því að ná samkomulagi eins ég hef gert í Brussel og víðar. En að sama skapi þá viðurkenna menn það að þetta er dálítið flókið og ber mikið í milli.“ Meira »

„Engin minnihlutastjórn“

Kópavogur
14:30 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Kópavogs hefur hug á að lækka fasteignagjöld í bænum. Fara á í söluátak á lóðum, en tugir lausra byggingalóða eru óbyggðar. Um 44% þeirra sem kusu í síðustu sveitarstjórnarkosningum standa á bak við nýja meirihlutann. Meira »

Áfallin staða A-deildar í plús

Fjármálaráðuneytið.
14:44 Áfallin staða A-deildar LSR, þ.e. skuldbindingar umfram eignir, nam í árslok 2010 tæpum 4,2 milljörðum króna eða 2,5% af eignum. Þetta segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá fjármálaráðuneytinu og Fjársýslu ríkisins. Meira »

Fastur á Ódrjúgshálsi í nótt

Helgi Auðunsson, eigandi flutningafyrirtækisins Nönnu á Patreksfirði.
14:30 „Það er skelfilegt að búa við þetta árið 2012,“ segir Helgi Auðunsson, eigandi flutningafyrirtækisins Nönnu á Patreksfirði, en flutningabíll frá fyrirtækinu sat fastur á Ódrjúgshálsi í alla nótt vegna erfiðrar færðar. Hann átti að vera kominn til Patreksfjarðar í morgun, en var enn ekki kominn kl. 14 í dag. Meira »

ESB og Noregur taki sér 90% makrílkvótans

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ásamt Mariu Damanaki, yfirmanni sjávarútvegsmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
14:26 „Það er því að okkar áliti tímabært að senda Íslandi mjög sterk pólitísk skilaboð í aðdraganda næstu viðræðna í Reykjavík þannig að Íslendingar komi að borðinu með raunhæft samningsumboð.“ Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
EINSTAKLEGA MJÚKIR OG ÞÆGIL.DÖMUSKÓR
Teg. 99502 Litur: Grár- Stærðir: 36-41. Verð: 15.885. Teg. ...
BÓKHALDSSTOFA MEÐ ÁRATUGA REYNSLU
Bókhaldsstofa með áratuga- reynslu Bókhald, ársr...
KLIPPING - dömu og herra - 3.000 kr.
VERÐDÆMI virka daga, stutt hár: Lagning 2.400, blástur 2.800, perm. 5.900, litun...
Bókhaldsþjónusta
bókhald, laun, skil á vsk og lífeyrissj., uppgjör og framtal. s:533-4700, 842-55...
 
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimili Grensáskirkju Sunnu...
Samkoma hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Samkoma sunnudag kl. 17 Kafteinn ...
Starfsmenn á reykjavíkurflugvelli
Akstur
ISAVIA OHF ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA ÖFLUGA ...
Menntaáætlun nordplus - styrkir

Menntaáætlun Nordplus 2012 Auglýst ef...