Eggjum kastað í ráðherrabifreið Björns Bjarnasonar

Björn Bjarnason. stækka

Björn Bjarnason.

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir á heimasíðu sinni í dag að óprúttnir aðilar hafi kastað eggjum í ráðherrabifreið sína, sem var lagt fyrir utan Alþingishúsið.

Þegar Björn mætti í þinghúsið í dag var fámennur hópur fyrir framan húsið og hélst í hendur „og heyrðist mér einhverjir púa, þegar ég gekk í áttina að dyrum skálans,“ skrifar Björn.

Björn segir að skömmu eftir að hann hafði sest til matar í Alþingisskálanum, hafi Jón Magnússon, þingmaður frjálslyndra, komið og spurt sig hvort ráðherrabíll fyrir utan væri á hans vegum. „Ég kvað já við því og sagði Jón mér þá, að kastað hefði verið í hann eggjum. Jón Geir, bílstjóri minn, fór á bílnum til að þrífa hann, en þegar ég gekk með Illuga Gunnarssyni alþingismanni  út úr skálanum var enginn sjáanlegur við þinghúsið,“ skrifar Björn.

„Á mbl.is er sagt frá því, að samtökin Nýir tímar hafi staðið fyrir þessum aðgerðum við þinghúsið en þau berjist fyrir því að ríkisstjórnin víki og tímabundin þjóðstjórn verði skipuð. Að það markmið náist með því að kasta eggjum í ráðherrabíla, finnst mér ólíklegt,“ skrifar Björn ennfremur.

Myndir voru birtar af eggjakastinu á vefnum ljosmyndakeppni.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

80 kannabisplöntur fundust við húsleit.

Kannabisræktun í Kópavogi

19:10 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi í gær. Við húsleit fundust um 80 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar, og um 1,4 kg af marijúana. Meira »
Thomas Hammarberg og Ögmundur Jónasson ræddust við í dag.

Ræddu stöðu mannréttindamála

18:43 Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, Thomas Hammarberg frá Svíþjóð, er í heimsókn hér á landi og átti meðal annars viðræður við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra. Ræddu þeir bæði stöðu mannréttindamála á Íslandi og á alþjóða vettvangi. Meira »

EasyJet til Íslands allt árið

easyJet
18:37 Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet hefur ákveðið að fljúga áfram á milli Íslands og Lundúna næsta vetur. Er sú ákvörðun að fljúga til Íslands allt árið tekin þar sem flugleiðin hefur fengið góðar viðtökur. Meira »

Takmarkanir verði á auglýsingum

Útvarpshúsið við Efstaleiti.
18:04 Í drögum nefndar á vegum menntamálaráðherra um endurskoðun laga um RÚV er m.a. lagt til að settar verði takmarkanir á sjónvarpsauglýsingar, sem munu skerða tekjur RÚV af birtingu auglýsinga um 15%. Meira »

Bæta þarf eftirlit með samningum

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur m.a. gert skuldbindandi samning við Ríkisútvarpið ohf.
17:06 Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert fjölmarga samninga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum. Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi eftirlit með framkvæmd samninganna sem og ýmislegt annað sem tengist umsýslu þeirra. Meira »

Lúmsk ísing á vegum

18:12 Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við að nú síðdegis frystir víða við yfirborð og myndast lúmsk ísing þar sem vegir eru blautir, einkum sunnan- og vestalands. Meira »

Evróvisjón í skugga kúgunar?

Margir hafa áhyggjur af stöðu mannréttindamála í Aserbaídsjan.
17:29 Senn líður að hinni árlegu Evróvisjónkeppni. Nokkur styr stendur um keppnina í ár, sem verður haldin í Aserbaídsjan, en þar þykir pottur víða brotinn í mannréttindamálum. Mannréttindasamtök segja tjáningar- og félagafrelsi takmarkað og samkynhneigðir Aserar sæta áreitni lögreglu og stjórnvalda. Meira »

Krafðist að dómari viki vegna óvildar föður

Hæstiréttur
16:41 Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu manns um að dómari viki sæti var hafnað. Maðurinn byggði kröfu sína á meintri óvild látins föður dómara í garð látins föður stefnda. Meira »

Margrét er sátt við flutning

Margrét Frímannsdóttir er sátt við flutning fangelsisstarfseminnar á Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi.
16:32 „Sogn býður upp á marga góða kosti, við erum sátt við þennan stað,“ segir Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni, um þá hugmynd að flytja fangelsisstarfsemina á Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi. Meira »

„Þetta er hræðilegt, ég er í áfalli“

Tómur skartsgripastandur í verslun Lauru Ashley.
16:16 Brotist var inn í verslun Lauru Ashley í nótt og þaðan stolið öllum skartgripum og öðrum vörum. Tvö önnur innbrot voru framin í verslunum í nágrenninu í nótt. Meira »

„Kemur ekki á óvart“

Sigurjón Þórðarson
16:24 „Þessi dómur kemur mér ekki á óvart,“ segir Sigurjón Þórðarson, formaður Frjálslynda flokksins, um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Reykjavíkurborg beri að greiða Frjálslynda flokknum tæpar sjö milljónir króna sem greiddar voru til Borgarmálafélags F-listans sem Ólafur F. Magnússon, þáverandi borgarstjóri, hafði umráð yfir. Meira »

Miðar hægt en örugglega niður

Tveir Bretar voru sóttir á Vatnajökul í morgun. Þeir eru nú á leið niður af ...
16:15 Björgunarleiðangrinum á Vatnajökli miðar hægt en örugglega til byggða með Bretana tvo sem óskuðu eftir aðstoð í morgun. Slæm færð er á svæðinu og veður versnandi. Meira »

Nauðgunarmál enn í rannsókn

16:07 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn til rannsóknar nauðgunarkærur á hendur Agli Einarssyni. Í síðustu viku sendi ríkissaksóknari málið aftur til lögreglu til frekari rannsóknar. Sú rannsókn gengur ágætlega og á lögreglan von á að henni muni ljúka í lok næstu viku. Meira »

Varað við ísingu

15:43 Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við því hætta sé á að það myndist lúmsk ísing á vegum sunnan- og vestanlands nú síðdegis þegar fer að frysta á ný. Meira »

Jarðskjálfti upp á 3,8 stig

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg. Sá stærsti var 3,8 á richter kvarða.
15:39 Skjálftahrina hefur staðið yfir síðan í morgun á Reykjaneshrygg. Hafa 4-5 skjálftar náð yfir 3 stigum, sá stærsti upp á 3,8 stig. Meira »

Frjálslyndi flokkurinn vann

Ólafur F. Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi.
15:46 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Frjálslynda flokknum í vil í dómsmáli sem reis vegna ágreinings um hver ætti að fá framlag Reykjavíkurborgar vegna framboðs til borgarstjórnar. Borginni er gert að greiða 6,7 milljónir, auk vaxta, til flokksins. Meira »

Ríkisstjórnin móti sameiginlega ESB-stefnu

Þinghús ESB í Strasbourg.
15:42 Fram kemur í uppkasti að ályktun utanríkismálanefndar þings Evrópusambandsins frá síðastliðnum mánudegi að fulltrúar í nefndinni hefðu áhyggjur af því að ríkisstjórnarflokkarnir hér á landi, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Samfylkingin, séu ekki samstíga í afstöðu sinni til inngöngu í sambandið. Meira »

Heitavatnslaust í Fossvogi á morgun

Starfsmenn Orkuveitunnar
15:25 Heitavatnslaust verður frá kl. 9:00 í fyrramálið í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Vonast er til að viðgerð verði lokið uppúr kl. 19:00 sama dag. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
AKUREYRI
AKUREYRI Höfum til leigu íbúð með gistiaðstöðu fyrir 6-7 manns. Fullbúin íbúð, g...
2 flottir strákabúningar til sölu
Til sölu eru 2 búningar: Superman búningur st. medium 6-8 ára kr. 3.000 Löggub...
TIL SÖLU HVÍTLAKKAÐ BARNARIMLARÚM
Ný lakkað með vönduðu lakki. Rúmið er alveg eins og þetta á myndini, nema að það...
Hitablásari
Lítið notaður hitablásari, 62 x 62 cm, kostar nýr kr. 206.000-. Verð kr. 120.000...
 
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í nes- og melahverfi

Félag sjálfstæðismanna í Nes- og Melahv...
Hjálpræðisherinn kaffi amen
Félagsstarf
Kaffi Amen, föstudagur kl. 21 L...
Samkoma hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Samkoma sunnudag kl. 17 Kafteinn ...
3 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...