Verðmunur milli verslana minnkar

Ásdís Ásgeirsdóttir

Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á matvöru í lágvöruverðsverslunum og öðrum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Nóatún var oftast með hæsta verðið í könnuninni. ASÍ segir, að vísbendingar séu um að verðmunur á milli lágvöruverðsverslana og annarra stórmarkaða sé að minnka.

Í Bónus var lægsta verð á 31 af 50 vörum sem kannaðar voru en Fjarðarkaup og Kaskó voru næst oftast með lægsta verðið eða í 7 tilvikum. Nóatún reyndist með hæsta verðið á 34 af 50 vörum sem skoðaðar voru en Hagkaup var næst oftast með hæsta verðið eða á 11 vörum.

Mestur verðmunur í könnuninni var á kílóverði af heilum ferskum kjúklingi sem var dýrastur 1070 krónur í Nóatúni og Fjarðarkaupum, en ódýrastur  525 krónur í Nettó sem er 104% verðmunur. Minnstur verðmunur reyndist hins vegar á kílóverði af forverðmerktum Skólaosti sem kostaði 1190 krónar í Bónus, Krónunni og Fjarðarkaupum þar sem veittur er 5% afsláttur af merktu verði við kassa, en 1253 krónur í öllum öðrum verslunum.

Í könnuninni var m.a. skoðað verð á nokkrum algengum bökunarvörum í jólabaksturinn, s.s. hveiti, sykri, smjöri, hnetum, súkkulaði og vanilludropum, og reyndist í flestum tilvikum talsverður munur á hæsta og lægsta verði þessara vara. Sem dæmi má nefna að 42% munur var áLjóma smjörlíki sem var ódýrast  147 krónur í Bónus en dýrast  209 krónur í Nóatúni, og 74% verðmunur var á glasi af vanilludropum sem kostuðu 97 krónur í Bónus en 169 krónur í Samkaupum-Úrvali.

ASÍ segir, að stærri pakkningar virðist ekki alltaf skila sér í lægra einingaverði. Strásykur frá Dansukker sé bæði til í 1 kg. og 2 kg. pakkningu í sumum verslunum. Í Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali sé hagstæðara að kaupa tvær kílóapakkningar en eina tveggja kílóa. Það sama eigi við um Konsum suðusúkkulaði sem bæði er til í 200 gr. og 300 gr. pakkningum í Hagkaupum og Nóatúni. Kílóverðið á minni pakkningunni sé í báðum verslunum lægra en á þeirri stærri.

Þá segir ASÍ að athygli veki að munur á hæsta og lægsta verði á þeim vörum í könnuninni, sem einnig voru skoðaðar í sambærilegri könnun í þessum sömu verslunum í mars, hafi í flestum tilvikum minnkað talsvert. Þannig hafi munur á hæsta og lægsta verði á Fitty samlokubrauði verið 77% í mars en sé nú 32% og munur á hæsta og lægsta kílóverði á banönum hafi veirð 153% í mars en er nú 83%. Þetta gefi vísbendingu um að verðmunur á milli lágvöruverðsverslana og annarra stórmarkaða sé að minnka. Þetta sé einnig i samræmi við niðurstöður sem verðlagseftirlitið hafi birt undanfarið um breytingar á verði vörukörfu ASÍ sem hefur frá því í vor hækkað meira í lágvöruverðsverslunum en öðrum verslunum.

Verkönnun ASÍ

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gisting á Höfuðborgarsvæðinu.
Erum með laus herbergi í gistiheimilinu. Tilboð í maí. Gistiheimilið Lily Nýb...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
Hyundai Trajet 2002
Hyundai Trajet 2002. Ekinn 174þ. Heillegur bíll. Nýleg tímareim, nýtt í bremsum,...
VOLVO S60 TURBO
Volvo S60 Turbo 20v . Nýskr. 2/2005, ekinn 142 þ. km, bensín...
 
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....