Ríkisútvarpið verður að hegða sér almennilega

Páll Magnússon útvarpsstjóri segir fréttir. stækka

Páll Magnússon útvarpsstjóri segir fréttir. mbl.is/Árni Sæberg

Morgunblaðið Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is

„Það er ljóst að Ríkisútvarpið hefur verið aðgangshart og ég held að það sé það sem fer fyrir brjóstið á mönnum og það, eðlilega, förum við yfir,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra um stöðu Ríkisútvarpsins (RÚV) á auglýsingamarkaði en um hana er fjallað í nýju áliti Samkeppniseftirlitsins. Starfsmenn ráðuneytisins hefðu fundað með stjórnendum RÚV vegna málsins og það væri alveg ljóst að RÚV yrði að halda sig innan þess ramma sem því væri ætlaður á auglýsingamarkaði.

Þorgerður Katrín hyggst fara nákvæmlega yfir niðurstöður álitsins og eiga síðan fund með Páli Magnússyni útvarpsstjóra. Þá sagði hún ljóst að RÚV hefði breytt sinni hegðan eftir að ráðuneytismenn áttu fund með stjórnendum þess.

Eftir að Þorgerður Katrín fékk upplýsingar um að Skjárinn væri í erfiðri stöðu vegna samkeppninnar við RÚV setti hún á laggirnar starfshóp sem hefur tvö meginhlutverk; annars vegar að fjalla um stöðu RÚV á auglýsingamarkaði og hins vegar að fjalla um eignarhald á öðrum fjölmiðlum. Þorgerður Katrín sagði að tryggja yrði fjölbreytta flóru á fjölmiðlamarkaði, þar með talið varðandi prentmiðla. Niðurstaðan af starfi starfshópsins gæti allt eins orðið sú að RÚV yrði tekið að hluta til út af auglýsingamarkaði og um leið myndu tekjur þess skerðast. „En ég legg ríka áhersla á það að Ríkisútvarpið hagi sér almennilega og sé ekki í einhverjum leik sem verður til þess að aðrir fjölmiðlar eigi erfitt með að starfa hér. Það skiptir miklu máli og Ríkisútvarpið verður að átta sig á því.“ Gerðar væru ríkar kröfur til RÚV, bæði á siðlegum og lagalegum forsendum.

Þorgerður Katrín sagði að RÚV væri mikilvæg stofnun og yrði að gæta að hlutverki sínu hvað varðaði menningu og almannaþjónustu. Um leið mætti RÚV ekki haga sér þannig að það valtaði yfir aðra fjölmiðla.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Porsche Boxster
Til sölu Porsche Boxster Árgerð: 2000 Ekin: 112 þús Flottur og í góðu ástand...
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ - TILBOÐ Dömuskór úr leðri með korks...
YAMAHA V-STAR 650cc 2005
Fallegt og þægilegt hjól fyrir byrjendur og lengra komna, ekið 9800 km vel með f...
Til sölu Volvo 940GL árg.91, nýskoðaður
Til sölu Volvo 940GL árg.91, 5 cylindra, 2.4, nýskoðaður, sjálfskiptur, leður sæ...
 
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...