Jafnréttisviðurkenning Stígamóta afhent

Kolbrún Halldórsdóttir var hópi þeirra sem fengu jafnréttisviðurkenningu Stígamóta.
Kolbrún Halldórsdóttir var hópi þeirra sem fengu jafnréttisviðurkenningu Stígamóta. mbl.is/Þorkell

Stígamót afhentu í dag fyrstu jafnréttisviðurkenningu sína við hátíðlega athöfn í Iðnó í tengslum við Evrópumálstofu um kynbundið ofbeldi. 

Viðurkenninguna hlutu þær Þorgerður Einarsdóttir, Margrét Steinarsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Katrín Anna Guðmundsdóttir og Matthildur Helgadóttir. Var þeim þakkað starf sitt fyrir samtökin, fyrir kvenréttindabaráttuna og baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.

 

 

 

 

 

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert