Sérsveit hærra launuð
eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is
Meðlimir í sérsveit ríkislögreglustjóra, sem nú eru 41 talsins, fá ríflega 14% hærri laun en aðrir lögreglumenn. Á síðasta ári höfðu þeir að meðaltali tæpar 618.000 krónur í mánaðarlaun, en aðrir lögreglumenn um 540.000 krónur. Þetta kom fram í svari Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra á Alþingi í gær, við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri-grænna.
Þá kom fram að rekstarkostnaður sérsveitarinnar jókst um 62,5% í krónum talið frá 2005 til 2007. Var um 256 milljónir króna árið 2005 en 415 milljónir árið 2007. Af svarinu mátti einnig ráða að langflest verkefni sérsveitarmanna eru almenn lögregluverkefni og að um eða undir 25% af vinnutíma þeirra fer í þjálfun.
Aðspurð segir Kolbrún það hafa vakið athygli sína að þeir sem beri byssurnar séu hærra metnir en aðrir í launum. Hún tekur heldur ekki alfarið undir að áhættusamari störf þeirra réttlæti þennan launamun. Kolbrún segist ekki sjá skýran áhættumun á því t.d. að gæta öryggis stjórnmálamanna á krepputímum eða ganga um götur miðborgarinnar að næturlagi um helgar.
Þá segir hún óæskilegt að gjá myndist á milli mismunandi deilda innan lögreglunnar, og tortryggni þar með, vegna elítumyndunar. Fullkominn trúnað þurfi milli ríkislögreglustjóra og almennra embætta og lögreglan að starfa sem ein heild.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. desember 2008, Innlent Tekur við embætti lögreglustjóra um áramót
- Sunnudagur, 17. febrúar 2008, Innlent Fíkniefnaakstur á Akureyri
- Föstudagur, 7. nóvember 2008, Innlent Segir fréttir DV af sérsveit uppspuna
- Föstudagur, 28. desember 2007, Innlent Rúm 13.000 hegningarlagabrot
- Þriðjudagur, 23. september 2008, Innlent Sérsveit og fjarskiptamiðstöð styðja við öll lögregluembætti
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































