Verðtryggingin verði fryst
Eftir Önund Pál RagnarssonBenedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri frá Akureyri, gerði harða hríð að verðtryggingu lána, sem verið hefur við lýði á Íslandi síðustu áratugi, á borgarafundi í Háskólabíó í kvöld. Hann sagði að við núverandi aðstæður væri jafnræði brotið á margvíslegan hátt.
Benedikt lagði til að vísitölumæling Hagstofunnar verði frystur með lögum, t.d. frá og með 1. september 2008 eða jafnvel fyrr, frysta eigi pappíra þar til komið er yfir mesta verðbólgukúfinn og þar til komið er yfir þá aðgerð að setja krónuna á flot.
Þá talaði Benedikt um þau hundruð milljarða sem sett hafa verið í að lágmarka tjón í peningamarkaðssjóðum bankanna og nefndi loforð stjórnvalda um að vernda innistæður í bönkum, ,,þ.e. þeirra sem eiga peninga,” sagði Benedikt. Að vísu séu aðrir hópar ekki að njóta sömu kjara vegna aðgerða ríkisvaldsins, enn sé þar verið að ögra jafnræðinu.
Þá talaði hann um Íbúðalánasjóð og áróðurinn fluttur hafi verið gegn þeirri stofnun allt frá einkavæðingu bankanna. Ríkistjórninni, sem beini milljarðahundruðum í sértækar aðgerðir til að rétta við einstaka sjóði í bankakerfinu, verði ekki skotaskuld úr því að rétta við það sem misfarist hafi í rekstri ÍLS, rétti af stöðu hans.
Fólksflótti gæti brostið á
Þá varaði hann við fólksflótta frá Íslandi ef ekki yrði brugðist við verðtryggingu lána, sem færi hækkandi með hverjum deginum. Ef íbúðalán fái að hækka áfram með vísitölu sjái fólk sér þann kost einan að hætta að borga og flytja úr landinu eigi það þess kost. Komast eigi út úr séríslenskri verðtryggingu og hafna séríslensku ranglæti. ,,Munum að verðtryggingin er ekki náttúrulögmál, hún er mannanna verk og það er þeirra hlutverk að breyta henni,” sagði hann við alþingismenn sem sátu á sviðinu fyrir aftan hann.
Þá gerði hann að umtalsefni þörfina á því að skipta um fólk í forystunni í stofnunum og stjórnmálum. Hann sagði að þyngja þurfi kröfuna á endurnýjun í framlínunni, tiltekt í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. Öðru fremur ætti þó að kalla á markvissar aðgerðir stjórnvalda. „Áfram Ísland,” sagði hann í lokin.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Bjarnason Bensi var góður -
Ísleifur Gíslason Erlendu lánin og líeyrissjóðirnir -
Friðrik Óttar Friðriksson Vítaverð óbilgirni -
Sigrún Jóna Gott hjá Benedikt. -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Grundvallaratriði. Burt með spillingarliðið -
A.L.F Hvað þarf til? -
Karl Ólafsson Frábær málflutningur Benedikts -
Eiríkur Guðmundsson Vonandi að menn hlusti -
Júlíus Björnsson Verðtrygging miðað við Íbúðahúsfermetra -
Gestur Guðjónsson Talar í lausnum - hafnað af Samfylkingu -
Sigurður Jónsson Verðbólguskot til 40 ára. -
Guðl. Gauti Jónsson Dreifum byrðunum
Innlent »
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 13. september 2008, Innlent Rannsóknarboranir næsta sumar?
- Mánudagur, 14. desember 2009, Innlent Vilja banna bjórkvöldin
- Mánudagur, 23. nóvember 2009, Innlent Rök fyrir verðtryggingu brostin
- Föstudagur, 6. febrúar 2009, Innlent Lögðu áherslu á sterk tengsl
- Þriðjudagur, 22. september 2009, Innlent Dregnir burt með krana eftir árekstur
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































