Komnir í afplánun

Hluti af ametmínverksmiðjunni.
Hluti af ametmínverksmiðjunni.

Tveir karlmenn, sem hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á ætlaðri framleiðslu fíkniefna í Hafnarfirði, hafa hafið afplánun vegna annarra mála. Um er að ræða eftirstöðvar fangelsisvistar. Annarsvegar er um að ræða 300 daga og hinsvegar 1080 daga.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði fram kröfu þess efnis og á hana var fallist í Héraðsdómi Reykjaness í dag en gæsluvarðhaldsúrskurður yfir mönnunum átti að renna út á morgun.

MennirnirÞeir eru á þrítugs- og fertugsaldri en þeir voru báðir á reynslulausn. Yngri maðurinn hefur kært þennan úrskurð til Hæstaréttar.

Lögreglan segir, að rannsókn á ætlaðri framleiðslu fíkniefna í Hafnarfirði miði vel.
 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert