Gift á þriðja tug milljarða í mínus
Höfuðstöðvar - Samvinnutryggingar voru löngum til húsa að Ármúla 3, þar sem Vátryggingafélags Íslands er nú. mbl.is/Árni Sæberg
eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is
Skuldir Giftar fjárfestingarfélags, sem stofnað var utan um skuldbindingar Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga í júní í fyrra, nema á þriðja tug milljarða umfram virði eigna samkvæmt greinargerð sem stjórn Giftar sendi skilanefnd Samvinnutrygginga á þriðjudag.
Skilanefndin hefur unnið að slitum á Gift síðan ákvörðun um slitin var tekin á sumarmánuðum í fyrra. Þá var eigið fé félagsins um 30 milljarðar. Rúmlega 50 þúsund lögaðilar, einstaklingar og fyrirtæki, áttu að eignast hlutafé félagsins við slitin. Samvinnusjóðurinn var þar stærstur með milli 30 og 40 prósenta hlut. Ekkert er því til skiptanna eins og staða mála er nú, eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu.
Stjórn félagsins leggur til í greinargerð sinni að beðið verði með ákvarðanir varðandi framtíð félagsins þar til „línur skýrist á fjármálamörkuðum“. Auk þess sé vert að bíða niðurstöðu í dómsmáli sem höfða á vegna yfirtöku breska fjármálaeftirlitsins á Kaupþingi í London sem leiddi til falls bankans.
Í greinargerðinni, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, segir m.a.: „Staða félagsins er því með þeim hætti að skuldir umfram eignir skipta mörgum milljörðum. Í drögum að 6 mánaða uppgjöri samstæðu Giftar er eigið fé neikvætt um 1,7 milljarða. Í sama uppgjöri eru eignir í skráðum félögum rúmir 20 milljarðar. Stór hluti þeirra eigna er nú tapaður. Auk þess eru framvirkir samningar neikvæðir sem nemur milljörðum af sömu orsökum.“
Í greinargerðinni kemur einnig fram að Gift eigi rúman milljarð í peningum inni á reikningi í Kaupþingi. Gift keypti hlut í Kaupþingi í desember á síðasta ári fyrir um 20 milljarða króna. Bréfin voru keypt af bankanum en þau voru áður í eigu fjárfestingarfélagsins Gnúps.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Innlent Kaupþing réð ferðinni í Gift
- Sunnudagur, 30. nóvember 2008, Innlent Kanna réttarstöðu vegna Giftar
- Miðvikudagur, 15. október 2008, Innlent Verðmæti Giftar hefur rýrnað mikið
- Laugardagur, 29. nóvember 2008, Innlent SÍS vill rannsókn á Gift
- Fimmtudagur, 16. október 2008, Innlent Ekkert ákveðið um slit Giftar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...




































