Farið fram á að gæsluvarðhald verði framlengt

Lögreglan. stækka

Lögreglan.

Lögreglan á Selfossi krafðist í dag framlengingar á gæsluvarðhaldi yfir einum fjórmenningana sem handteknir voru eftir að tilkynnt var um að maður hefði látist í sumarbústað í Grímsnesi.  Dómari tók sér frest til hádegis á morgun til að taka afstöðu til kröfunnar.

Fram kemur á lögregluvefnum að tildrög málsins séu þau að að morgni 8. nóvember 2008 hafi húsráðendur í sumarbústað í Oddsholti í Grímsnesi tilkynnt um að maður sem var gestkomandi hjá þeim væri látinn. Lögregla og sjúkralið fór þegar á vettvang og hittu fyrir húsráðanda þar og sambýliskonu hans ásamt vinkonu þeirra og vísuðu þau á hinn látna í sófa í stofu í húsinu. Áverkar voru á höfði hins látna og þóttu skýringar þeirra sem á staðnum voru á þeim ótrúverðugar. Þau voru öll handtekin og færð á lögreglustöð á Selfossi. Fljótlega kom í ljós að fyrr um morguninn hafði eiginmaður vinkonunnar farið úr húsinu, akandi til Reykjavíkur, ásamt um árs gömlu barni þeirra hjóna. Hann var handtekinn síðar um daginn í Reykjavík.

Öll hin handteknu voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til 28. nóvember en þrjú þeirra hafa þegar verið látin laus, önnur konan hinn 16. nóvember s.l, hin hinn 21. nóvember og karlmaður var látinn laus í gær. Öll hafa þau verið úrskurðuð í farbann til 18. febrúar n.k.

Að rannsókninni hafa, auk lögreglu á Selfossi, komið réttarmeinafræðingur frá Rannsóknarstofu Háskólans, lögreglumenn við tæknideild lögreglu höfuðborgarsvæðisins og sérfræðingar þeirra og lögreglumenn í tölvurannsóknardeild sama embættis. Rannsóknin hefur verið mjög viðamikil og falið m.a. í sér samanburð á sönnunargögnum sem aflað var á vettvangi og áverkum hins látna sem og framburði grunaðra. Krufning hefur leitt í ljós að hann lést af blæðingum í heila eftir að hafa hlotið þungt höfuðhögg. Vísbendingar eru um að sparkað hafi verið í höfuð hans og að hann hafi látist mjög skömmu eftir að það var gert. Fær það stoð í ummerkjum á höfði hins látna sem og rannsókn á blóðferlum á vettvangi og á sýnum sem tekin voru til rannsóknar úr heila hans. Þau sýni hefur þurft að meðhöndla í allt að 16 daga áður en unnt væri að komast að þeim niðurstöðum sem taka þeirra gaf.

Atvikið í sumarbústaðnum var sviðsett eftir fyrirsögn karlmannanna tveggja , hvors í sínu lagi, til að staðreyna framburð þeirra. Staðfest er að allir málsaðilar hafa verið verulega ölvaðir þegar atvikið átti sér stað en efnt hafði verið til veislu þar seinni part dags deginum áður og komu hjónin með barn sitt þangað ásamt hinum látna. Ekki er talið að aðrir hafi verið í húsinu.

Brotin sem til rannsóknar eru eru annarsvegar gegn 211. gr. almennra hegningalaga, þ.e.a.s. manndráp og hinsvegar gegn 220. gr. og 221. gr. sömu laga, að koma ekki deyjandi manni til hjálpar.

Hinn látni hét Almis Keraminas og var fæddur árið 1970 í Litháen. Hann var búsettur í Reykjavík.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir vaxandi stuðning við Kanadadollar

22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka og að skoða ætti möguleikann á gagnkvæmu bandalagi.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HÓPFERÐABÍLAR
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9...
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01 4 stk. Verð 15.000kr. Uppl. í sím...
Opel Astra Caravan '00
Ekinn 163 þús., skoðaður 2013. 1.6l vél og sjálfskiptur. Nýbúið að skipta um tím...
VW TRANSPORTER 4X4 DÍSIL 2006
Til sölu VW TRANSPORTER KASTEN SYNCRO Dísil árg. 2006 með fjórhjóladrifi ekinn ...
 
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...
Útboð ljósleiðaravæðing

Skeiða- og Gnúpverjahreppur Útboð S...