Fé Orkuveitunnar 10%
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is
Eigið fé Orkuveitu Reykjavíkur er rúmlega tíu prósent umfram skuldir. „Það sígur stöðugt á ógæfuhliðina,“ segir Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar. Hlutfall eigin fjár var 46% í upphafi árs, hafði lækkað í 21% í níu mánaða uppgjörinu, og færist nú enn neðar.
„Ég sé að gengisvísitalan er nú 243. Hún þarf að versna töluvert áður en við förum á núllið.“ Hann segir engin ákvæði í lánasamningum sem leyfi að þeim verði rift þótt skuldir verði hærri en eigið fé. „Við stöndum vel að því leytinu til að við höfum gott handbært fé og engin hætta á að við getum ekki staðið í skilum. Við höfum miklar tekjur og staðan þarf að vera mjög slæm, í það minnsta allt næsta ár áður en kæmi að því að við gætum ekki greitt afborganir og vexti af þeim lánum sem við þurfum að borga af,“ segir hann og bætir við.
„Ef það verður, verður ekkert uppistandandi í þessu þjóðfélagi.“ Hann segir erfitt að sitja og fylgjast með genginu falla.
„En það er í sjálfu sér ekkert sem við getum gert. Við erum eins og aðrir áhorfendur að því sem er að gerast og getum ekki gripið til varna til að lagfæra okkar stöðu,“ segir Hjörleifur.
Hjörleifur segir hvorki í kortunum að segja upp starfsfólki né hækka verð. „Við höfum ekki gert ráð fyrir því að hækka gjaldskrá, þó svo að tilkostnaður okkar hækki. „Við verðum að þreyja ástandið með fólkinu í landinu.“ Draga verði úr framkvæmdum á Hellisheiði og vinnu við fráveitu á Vesturlandi.
Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitunnar, segir stjórnarfund í dag, þann seinni um fjárhagsáætlunina. „Þetta efnahagsástand setur verulegt strik í reikninginn. Nú þarf að huga að kjarnastarfsemi fyrirtækisins.“
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason VISSU EKKI AURA SINNA TAL FYRIR NOKKRUM ÁRUM,EN NÚNA AÐEINS ... -
Haraldur Haraldsson Fé Orkuveitunnar 10% !!!!!!
Innlent »
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 1. ágúst 2008, Innlent OR: Ekki þörf á útboði
- Fimmtudagur, 17. júlí 2008, Innlent Hjörleifur: Ekki mögulegt
- Laugardagur, 14. nóvember 2009, Innlent Hætta á greiðslufalli OR
- Þriðjudagur, 22. apríl 2008, Innlent OR mun kæra niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins
- Laugardagur, 12. júlí 2008, Innlent OR getur átt 16% í uppskiptri HS
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































