Formennirnir sitja fyrir svörum
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, leggst gegn því að erlendir aðilar fái hlut í bönkunum. Hann telur að íslenska ríkið eigi að eiga bankana um sinn og fara mjög varlega í allar breytingar á eignarhaldi. Steingrímur telur það ekki þjóna hagsmunum Íslendinga að svo stöddu að óska eftir aðildarviðræðum við Evrópusambandið og telur ekki skoðun á uppgötu annars gjaldmiðils ekki vera viðfangsefni næstu mánaða. Hann vill að bæði stjórn Seðlabankans og stjórnendur Fjármálaeftirlitsins eigi að fara frá
Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins, telur einnig nauðsynlegt að skipta um yfirstjórn Seðlabankans. Hún telur vel koma til álita að ríkið eigi enn um sinn einhvern hlut í bönkunum, en telur farsælast að hluti þeirra verði seldur aftur þegar aðstæður gefa tilefni til. Að hennar mati á að ganga til viðræðna um aðild að Evrópusambandinu og telur ógerningur að byggja upp kröftugt og mannvænlegt samfélag hérlendis án þess að taka upp traustari gjaldmiðil.
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, vill að bankaráð Seðlabankans víki sem og stjórnendur Fjármálaeftirlitsins. Hann telur skynsamlegt að erlendir aðilar eignist hluta í viðskiptabönkunum þremur. Hann vill ekki að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu við núverandi aðstæður. Að hans mati er besta leiðin til að styrkja krónuna á næstu misserum að hafa stíf gjaldeyristakmörk og samstarf við Noreg um gjaldmiðil og fjármál.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, telur að eignarhald ríkisins á bönkunum þremur hljót að vera tímabundin ráðstöfun og stefnt verði að því að innlendir jafnt sem innlendir fjárfestar komi inn í bankakerfið. Hún vill að Ísland gangi í Evrópusambandið og taki upp evru. Aðspurð telur hún að skipta eigi um bankastjórn í Seðlabankanum.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, telur ekki að ríkið eigi að eiga bankana til langrar framtíðar. Hann segir ekki útilokað að einhverjar breytingar verði gerðar á skipulagi þess eftirlits sem verið hefur hérlendis með fjármálamarkaði og peningamálum í landinu, s.s. með sameiningu Seðlabankans og FME. Spurður um upptöku annars gjaldmiðils segir Geir að skoða verði alla möguleika með opnum huga og leita þeirra leiða sem bestar eru. Hann segir hremmingar þjóðarinnar að undanförnu gefa tilefni til þess að mat Sjálfstæðisflokksins hingað til á Evrópusambandsaðild Ísland verði endurskoðað.
Meira í Morgunblaðinu á morgun.





































