Vilja einhliða upptöku annars gjaldmiðils

Peningaseðlar Íslenskir Dollarar og Bresk pund
Peningaseðlar Íslenskir Dollarar og Bresk pund Árni Sæberg

Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) skorar á stjórnvöld að kanna nú þegar kosti þess að taka einhliða upp annan gjaldmiðil. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórnin sendi frá sér fyrr í dag. 

Í greinargerð með áskoruninni segir:  „Frá því að horfið var frá fastgengisstefnu árið 2001 hefur gengi krónunnar í raun verið stýrt með háum vöxtum. Þetta varð til þess að gengi krónunnar var allt of sterkt um margra ára skeið og leiddi að endingu til skipbrots peningamálastefnunnar. Nauðsynlegt er að grípa hratt til aðgerða til þess til að koma á stöðugleika í efnahagslífinu, lækka vexti og afnema gjaldeyrishöft. Koma þarf í veg fyrir að fyrirtæki og heimili komist í þrot vegna hárra vaxta og verðbólgu og afstýra stórfelldu atvinnuleysi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert