Ofnæmislost eftir pöntun
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands þykir mikill fengur að nýjum sýndarsjúklingi, sem keyptur var með styrk úr Tækjakaupasjóð Háskólans. Um er að ræða tölvustýrða brúðu í mannsstærð sem líkir eftir viðbrögðum raunverulegs sjúklings, allt eftir því hvaða þætti á að þjálfa hverju sinni.
„Sjúklingurinn getur til dæmis farið í ofnæmislost, lungu hans geta fallið saman og hjartað stöðvast. Hægt er að stýra lungnahljóðum, púls og garnahljóðum, svo fátt eitt sé nefnt,“ að því er fram kemur í tilkynningu deildarinnar.
Þar segir:
„Hér er því á ferð fullkominn hermir fyrir kennslu í nákvæmu líkamsmati og öllum bráðaaðstæðum sem upp geta komið á heilbrigðisstofnunum og því gríðarlega mikilvægur áfangi í hjúkrunarfræðikennslu hér á landi sem og í kennslu annarra heilbrigðisvísindagreina.“
Segir þar jafnframt að hermirinn gefi nemendum tækifæri til að „byggja upp klíníska færni áður en þeir annast raunverulega sjúklinga“. Slíkt skapi „markvissari vinnubrögð þegar nemandinn þarf að takast á við raunverulegar aðstæður á sjúkradeildum og stuðlar að öryggi sjúklinga“.
Efnt var til samkeppni meðal nemenda og starfsmanna Háskóla Íslands um nafn á hinn nýja sjúkling. Alls bárust á fimmta hundrað tillögur en höfundur nafnsins sem deildarráð hjúkrunarfræðideildar valdi er Linda Dögg Hólm, nemandi við sálfræðideild.
Verður sýndarsjúklingnum gefið nafn við hátíðlega athöfn þriðjudaginn 2. desember kl. 10.00 í Eirbergi við Eiríksgötu 34. Þá gefst gestum og gangandi færi á að hitta þennan nýja og öfluga liðsmann deildarinnar, að því er segir í tilkynningu deildarinnar.
Innlent »
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. maí 2008, Innlent Gera athugasemdir við nám í hjúkrunarfræði hjá Keili
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Miðvikudagur, 14. maí 2008, Innlent Gagnrýna auglýsingar frá Keili
- Þriðjudagur, 14. apríl 2009, Innlent Býður sjálfstæðismenn velkomna
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































