Tilboði í Broddanesskóla tekið

Broddanesskóli
Broddanesskóli mbl.is

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Strandabyggðar voru tekin fyrir tilboð í Broddanesskóla, en Ríkiskaup hafði borist tvö slík. Hljóðaði hærra tilboðið frá Eysteini Einarssyni upp á 2,1 milljón, en það lægra upp á 350 þúsund. Þetta kemur fram á vefnum www.strandir.is.

Fram kemur í fundargerði sveitarstjórnarinnar að í viðtali við Hermann Jóhannesson hjá menntamálaráðuneytinu hafi komið fram vilji til að taka hærra tilboðinu. Sveitarstjórn samþykkti með 3 atkvæðum gegn 1 að samþykkja tilboðið.

Meirihluti J-lista í sveitarstjórn var algjörlega ósamstíga í málinu, einn greiddi atkvæði með, annar á móti og þriðji sat hjá. Skólinn sem er rúmlega 500 fermetra hús, 30 ára gamalt, var í sumar metinn á 18 milljóna virði af Fasteignamiðstöðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert