Árekstur við Akurhvarf

Einn var fluttur á slysadeild eftir að tveir fólksbílar rákust saman við hringtorg sem tengir saman Vatnsendaveg og Akurhvarf í Kópavogi. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um slysið kl. 17:34. Sá sem var fluttur er ekki talinn hafa hlotið alvarlega áverka.

Ökumennirnir voru einir í bílunum. Að sögn SHS varð slysið með þeim hætti að annarri bifreiðinni var ekið inn í hliðina á hinni við hringtorgið. 

Olía lak úr annarri bifreiðinni og var tækjabíll SHS kallaður á staðinn til að hreinsa upp olíulekann.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert