Forsætisráðuneyti ræður sænskan sséfræðing
Forsætisráðuneytið hefur ráðið til tímabundinna starfa Mats Josefsson, sænskan bankasérfræðing. Mats tekur við þeirri stöðu sem Ásmundur Stefánsson hefur gegnt við uppbyggingu bankakerfisins.
Starfið er skilgreint í 5. grein samkomulagsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þar sem segir: „Ákveðið skipulag er komið á við skil yfirteknu bankanna og leiðir til að hámarka heimtur eigna með gagnsæjum hætti. Stefna okkar að þessu leyti hefur verið útfærð nánar að undanförnu. Virtur bankasérfræðingur var skipaður til að stýra endurskipulagningu bankanna. Sérfræðingurinn starfar á vegum forsætisráðherra og ber ábyrgð á að þróa, innleiða og skýra frá heildstæðri aðgerðaáætlun um endurskipulagningu bankanna. Til að samræma stefnu og aðgerðir stjórnvalda hefur verið skipuð nefnd sem bankasérfræðingurinn stýrir og í eiga sæti fulltrúar frá forsætisráðuneyti, Fjármálaeftirliti, Seðlabanka, fjármálaráðuneyti, utanríkisráðuneyti og viðskiptaráðuneyti.”
Ásmundur Stefánsson hefur fram að þessu sinnt þessu starfi en þegar hann var skipaður formaður bankastjórnar Landsbankans var ákveðið að hann myndi ekki gegna því áfram.
Mats Josefsson starfaði í 13 ár hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en var áður aðstoðarforstjóri sænska fjármálaeftirlitsins og þar á undan forstöðumaður í sænska seðlabankanum. Hann stýrði eftirliti með bankastarfsemi í Svíþjóð á árunum 1990–1994 á tímum bankakreppunnar. Segir forsætisráðuneytið að vonast sé til að reynsla Josefsson af því verki nýtist Íslendingum við þær aðstæður sem nú eru uppi.
Josefsson lék sömuleiðis stórt hlutverk í milligöngu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í uppbyggingu bæði í Tyrklandi og Taílandi eftir bankakreppu sem þau lönd glímdu við frá því um og eftir aldamótin.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Th. Gunnarsson Enn einn hernaðarsérfræðingurinn? -
Súsanna Svavarsdóttir Verum spök.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 23. júní 2009, Innlent Josefsson setti engin skilyrði
- Þriðjudagur, 26. maí 2009, Innlent Tafir á uppskiptingu milli nýju og gömlu valda titringi
- Mánudagur, 16. nóvember 2009, Innlent Samningur við Josefsson rennur út um áramót
- Föstudagur, 13. nóvember 2009, Innlent Jóhanna ósammála Josefsson
- Föstudagur, 27. nóvember 2009, Innlent Þúsund evrur á viku
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































