„Eigum að vinna þetta saman“
Húsnæði Tryggingastofnunar ríkisins. mbl.is/Árni Torfason
Eftir Jón Pétur Jónsson„Við eigum að vinna þetta saman. Lögin kveða á um það og þannig vil ég vinna að þessu verki áfram,“ segir Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, þegar mbl.is spurði hana út í meint samstarfsslit Sjúkratryggingar Íslands og TR á þjónustusviði.
Í bréfi sem hefur borist forstjóra TR frá SÍ kemur fram að SÍ muni ekki halda áfram að starfa með TR að því að reka sameiginlega afgreiðslu, þjónustu og upplýsingagjöf við notendur þjónustunnar í Reykjavík. Það er hins vegar skýrt kveðið á þetta samstarf í lögum um sjúkratryggingar.
Þá hefur starfsmönnum á þessum sviðum verið boðið að sækja um starf hjá SÍ. Stefán Ólafsson, stjórnarformaður TR, segir í samtali við vefmiðilinn Smuguna að hann hafi áhyggjur af því að ef sá framkvæmdamáti nýju stofnunarinnar sem nú sé hafinn haldi áfram, verði það til að veikja Tryggingastofnun og skaða starfsemi hennar.
„Það skiptir mjög miklu máli að við vöndum okkur hvað varðar starfsmannamálin,“ segir Sigríður Lillý í samtali við mbl.is. „Við erum ekki búin að ljúka þessu ferli,“ segir hún og bætir við að hún eigi ekki von á öðru en að menn muni vanda til verka.
„Það fór bréf til starfsmanna [þar sem þeim sé boðið ótilgreint starf] og það hefur valdið ákveðnu óöryggi hjá þeim. Og við hljótum að reyna slá á það með einhverjum hætti og halda áfram að vinna þetta saman eins og við höfum gert sl. ár,“ segir Sigríður Lillý.
Sjúkratryggingar Íslands starfa samkvæmt lögum nr. 112/2008 um sjúkratryggingar sem tóku gildi þann 1. október 2008. Stofnunin heyrir undir heilbrigðisráðherra og annast framkvæmd sjúkratrygginga. Jafnframt semur hún um og greiðir fyrir heilbrigðisþjónustu.
Markmið laganna um sjúkratryggingar er að tryggja sjúkratryggðum aðstoð til verndar heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Jafnframt er markmiðið að stuðla að rekstrar- og þjóðhagslegri hagkvæmni í heilbrigðisþjónustu og hámarksgæðum þjónustunnar eftir því sem frekast er unnt. Þá er það einnig markmið laganna að styrkja hlutverk ríkisins sem kaupanda heilbrigðisþjónustu og kostnaðargreina þjónustuna.
Bloggað um fréttina
-
Ólafur Ragnarsson Köld gusa ??? -
Haraldur Haraldsson "Eigum að vinna þetta saman"/þetta er barasta bruðl og ekkert ... -
Sigurjón Benediktsson Og hvað kostar þetta?
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 4. ágúst 2009, Innlent Raunfjármagnstekjur 2,5 sinnum meiri en uppgefnar
- Mánudagur, 15. desember 2008, Innlent 240 milljónir ekki réttar
- Miðvikudagur, 1. október 2008, Innlent Sjúkratryggingar í nýrri stofnun
- Miðvikudagur, 6. febrúar 2008, Innlent Sigríður Lillý skipuð forstjóri Tryggingastofnunar
- Mánudagur, 15. desember 2008, Innlent Dýr Sjúkratryggingastofnun
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































