Lömbin seld á Facebook
Bræðurnir Sigurður Arnfjörð og Guðmundur Helgi Helgasynir vinna nú að því að fá kjötvinnsluna að Núpi í Dýrafirði löggilda svo þeir geti hafið þar framleiðslu úr heimahéraði.
„Málið er allt á byrjunarreit en við höfum rætt við nokkra smásöluaðila um að selja vöruna, þar á meðal eina verslun sem við viljum ekki nefna á nafn á meðan enn er eftir að ganga frá lausum endum“, segir Sigurður Arnfjörð hótelstjóri að Núpi, í samtali við vef Bæjarins besta.
Um er að ræða tilraunaverkefni sem hófst í kjölfarið á því að ákveðið var að bjóða upp á sérvalið lambakjöt úr heimabyggð á matseðli hótelsins.
„Ég hjálpaði til við smölun í Hjarðardal í Dýrafirði í sumar og sérvaldi 15 lömb sem jólahlaðborðsgestum á Núpi gefst kostur á að snæða og það hefur vakið mikla lukku. Nú ætlum við að ganga enn lengra og ætlum að taka að okkur að vinna öll lömbin sem leidd verða til slátrunar frá Hjarðardal næsta haust, sem verða á bilinu 300-500. Það er ágætis aukning milli ára að fara úr 15 í 300,“ segir Sigurður.
Næsta skref er að sögn bræðranna um að láta taka út kjötvinnsluna og gera hana löggilda því hún er eins og er einungis hæf til að vinna kjöt fyrir veitingastaðinn og þá bændur sem panta sér tíma til að slátra fyrir verkefnið Beint frá býli.
„Við vonumst að með þessu muni fleiri bændur muni taka upp á þessu. Við erum í raun á hverju hausti að missa mikil verðmæti úr fjórðungnum með því að senda lömbin annað í slátrun en ekkert sláturhús er á Vestfjörðum. Þar af leiðandi erum við að búa til störf í öðrum landshlutum í stað okkar heimabyggðar. Við viljum sporna gegn þessu og halda verðmætasköpuninni fyrir vestan“, segir Sigurður.
Bræðurnir hafa einnig stofnað Facebook-síðuna „Ég er að vestan“ sem inniheldur rúmlega 2200 meðlimi. Þeir ætla að styðjast við netið við sölu á kjötinu.
„Við munum þegar þar að kemur, senda tölvupóst á alla í grúppunni og þeir geta þá pantað læri, frampart eða hvað sem þá langar til. Við teljum okkur vera komna með það góðan grunn að við getum leikandi létt selt yfir 300 lömb,“ segir Guðmundur matreiðslumeistari en hann hefur starfað lengi vel við matartengda ferðaþjónustu á veitingastaðnum Friðrik V á Akureyri.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Þriðjudagur, 19. maí 2009, Innlent Kryfur hundruð lamba í sauðburði
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Mánudagur, 15. júní 2009, Innlent Draga má úr lambadauða
- Þriðjudagur, 18. ágúst 2009, Innlent Ær sundurtættar eftir hunda
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































