Margir hafa hug á vinnu í útlöndum
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is
Stöðugur straumur fólks var á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar við Engjateig í Reykjavík í gær. Þangað leitar fólk m.a. til að skrá sig vegna atvinnuleitar og eins vegna atvinnuleysisbóta. Einnig er afgreiðsla Fæðingarorlofssjóðs þarna til húsa. Útlendir karlar voru áberandi í hópnum sem beið í afgreiðslunni í gær en þar voru einnig Íslendingar, bæði konur og karlar.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, sagði álagið í afgreiðslunni á Engjateigi vera langmest fyrstu tvo daga mánaðarins. Mest álag í atvinnuleysisskráningu hefur verið í Reykjavík og á Suðurnesjum. Einnig hafa miklar annir verið á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd. Til dæmis bárust þangað um 1.500 símhringingar hinn 1. desember sl.
Reynt er að fá alla sem geta til að sækja um atvinnuleysisbætur á vefnum en ekki hafa allir tök á því. Langflestir þeirra sem koma í afgreiðsluna á Engjateigi eru útlendingar, mest Pólverjar. Þeir kom til að sækja um atvinnuleysisbætur, leggja inn tryggingavottorð og leita upplýsinga. Þar eru tveir pólskir starfsmenn sem hafa ærin verkefni.
Gissur sagði það vera á mörkunum að aðstaðan á Engjateigi dygði lengur á álagstímum. Því væri leitað eftir viðbótarhúsnæði í nágrenninu tímabundið til að létta á álaginu. Starfsfólki hefur einnig verið fjölgað í afgreiðslu og eins á Skagaströnd. Gissur sagði að málaflokkurinn væri flókinn og það tæki tíma að þjálfa nýtt starfsfólk. Afgreiðslutími á Engjateigi var styttur á föstudögum til að starfsfólk fengi ráðrúm til að vinna úr ófrágengnum umsóknum.
2.600 manns á kynningu
Dröfn Haraldsdóttir, verkefnisstjóri EURES (EES-vinnumiðlunar), sagði ásókn í störf erlendis hafa aukist ört. Nýlega var haldin kynning í Ráðhúsi Reykjavíkur og komu þangað um 2.600 manns og hittu m.a. fulltrúa erlendra fyrirtækja og ráðningarskrifstofa. Undanfarið hafa komið 20-30 Íslendingar á dag á skrifstofu EURES að athuga með vinnu utan Íslands. Dröfn sagði að verkefni EURES hér hefðu snúist við nánast á einni viku. Áður var aðalviðfangsefnið að aðstoða íslenska vinnuveitendur við að ráða útlendinga í vinnu eða aðstoða útlendinga sem vildu koma hingað í vinnu. Nú er áherslan á að hjálpa Íslendingum að fá vinnu í útlöndum og að aðstoða útlendinga sem vilja fara héðan til annarra landa innan EES.Dröfn sagði að sér hefði komið á óvart hve margir 45 ára og eldri Íslendingar væru að kanna með vinnu í öðrum löndum. Það væri líkt og þetta fólk hefði gefist upp á Íslandi. Fólkið hefði ýmist þegar misst vinnuna eða sæi fram á það. Iðnaðarmenn hafa verið áberandi en einnig fólk úr öðrum starfsgreinum. Dröfn sagðist þó ekki hafa orðið vör við að best menntaða fólkið væri að fara utan til starfa.
Eftir hádegið í gær var EES-vinnumiðlunin EURES með kynningu fyrir þá sem vilja athuga með vinnu í útlöndum. Dágóður hópur fólks var mættur og var fundarstofan nær fullsetin. Árni Steinar Stefánsson ráðgjafi annaðist kynninguna og hafði orð á því hve miklu fleiri væru mættir en á undanfarna kynningarfundi. Hann sagði 80-90% þeirra sem vildu leita vinnu í útlöndum horfa til Norðurlandanna, aðallega til Noregs og því næst til Danmerkur.





































