Á fjórða tug með tímabundna ráðningu

stækka

mbl.is/Jim Smart

Þrjátíu og fjórir starfsmenn eru í tímabundnum störfum á vegum 11 ráðuneyta Stjórnarráðsins.

Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Valgerðar Sverrisdóttur.

Í svarinu kemur ekki fram hvort eða hve margar tímabundnar ráðningar eru í utanríkisráðuneytinu.

Þrjátíu og tveir af þessum þrjátíu og fjórum starfsmönnum voru ráðnir á þessu ári eða samningar við þá framlengdir á þessu ári.

Þrjú ráðuneyti, samgönguráðuneyti, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti, hafa ekki ráðið starfsmenn tímabundið.

Samkvæmt lögum er ráðherra heimilt að ráða sér einn aðstoðarmann og eru aðstoðarmenn ráðherra í Stjórnarráðinu samtals 12.

Svör ráðuneytanna voru eftirfarandi:

Forsætisráðuneytið
Í ráðuneytinu eru fimm starfsmenn með tímabundna ráðningu. Einn starfsmaður var ráðinn frá 1. ágúst 2008, tveir starfsmenn frá 1. nóvember 2008, einn starfsmaður frá 12. nóvember 2008 og einn starfsmaður frá 13. nóvember 2008.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
Í ráðuneytinu eru þrír starfsmenn með tímabundna ráðningu (þ.m.t. Þjóðskrá). Einn starfsmaður var ráðinn frá 12. ágúst 2008 og tveir starfsmenn ráðnir frá 2. september 2008.

Félags- og tryggingamálaráðuneytið
Í ráðuneytinu eru sex starfsmenn með tímabundna ráðningu og voru þeir ráðnir 7. janúar 2007, 26. júní 2007, 24. janúar 2008, 1. maí 2008, 5. maí 2008 og 9. september 2008.

Fjármálaráðuneytið
Í ráðuneytinu eru sjö starfsmenn með tímabundna ráðningu. Þrír voru ráðnir frá 1. janúar 2008, einn var ráðinn frá 16. maí 2008 og tveir voru ráðnir frá 1. júní 2008. Þá réð ráðuneytið starfsmann í hlutastarf með námi frá 1. september 2008.

Heilbrigðisráðuneytið
Í ráðuneytinu eru tveir starfsmenn með tímabundna ráðningu, annar frá 1. október 2007 til 30. september 2008 en sú ráðning hefur verið framlengd til 31. desember 2008. Hinn starfsmaðurinn var ráðinn 1. júní 2008 til 11. júlí 2008 en samningurinn var endurnýjaður frá 1. september til 31. desember 2008.

Iðnaðarráðuneytið
Í ráðuneytinu eru tveir starfsmenn með tímabundna ráðningu, annar frá 8. febrúar 2008 og hinn frá 1. mars 2008. Einnig var ráðinn laganemi í tímabundna stöðu og hóf hann störf 15. maí 2008.

Menntamálaráðuneytið
Í ráðuneytinu eru sex starfsmenn með tímabundnar ráðningar og voru þeir ráðnir 14. janúar 2008, 1. febrúar 2008, 20. maí 2008, 1. september 2008 og 29. september 2008.

Samgönguráðuneytið
Í ráðuneytinu eru engar tímabundnar ráðningar.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
Í ráðuneytinu eru engar tímabundnar ráðningar aðrar en í afleysingum við almenn störf á skrifstofu.

Umhverfisráðuneytið
Í ráðuneytinu eru engar tímabundnar ráðningar.

Viðskiptaráðuneytið
Í ráðuneytinu eru tveir starfsmenn með tímabundnar ráðningar, annar frá 1. maí 2008 og hinn frá 9. október 2008.

Utanríkisráðuneytið
Kemur ekki fram í svari.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Uppsetning Innréttinga.
Láttu fagmann vinna verkið. Reynsla í í Brúnás framleiðslu. Einnig endurbætur ...
Nú er vor í lofti og allir ættu að nýta sér þetta tilboð
Bónstöð Ragga í Garði kynnir Alþrif með bóni, lakkhreinsun og djúphreinsun á s...
Ónotaðir þakbogar á Honda CRV 2007 til 2012
Er með ónotaða þakboga frá umboðinu fyrir Honda CRV árgerð 2007 til 2012. Fást á...
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
 
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...