Loforð eða hótun Davíðs?

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG. stækka

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG. mbl.is/Ómar

Morgunblaðið Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is

„Ég veit ekki hvort menn vilja líta á þetta sem loforð eða hótun, það fer sjálfsagt eftir smekk manna. Það er í sjálfu sér ekkert sem bannar Davíð Oddssyni að reyna aftur fyrir sér í pólítík ef hann vill og kannski hefur hann aldrei hætt,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, um ummæli Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra í viðtali við danska blaðið Fyens Stiftstidende. Blaðið hafði eftir Davíð að hann ætlaði sér að gegna embætti seðlabankastjóra í nokkur ár til viðbótar en hætta þá af sjálfsdáðum. Yrði hann hins vegar þvingaður úr starfi myndi hann snúa aftur í stjórnmálin.

Steingrímur segir að sér finnist ummæli seðlabankastjóra mjög óhefðbundin. Davíð megi að sjálfsögðu lýsa framtíðaráformum, þar á meðal hugmyndum um endurkomu í pólitík. „En það er álitamál hvort það sé heppilegt að segja það með þessum hætti og tengja það beint veru sinni í Seðlabankanum.“ Menn hljóti að gera breytingar á mikilvægum opinberum embættum, ef þarf, óháð þáttum af þessu tagi

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir ummælin sem höfð eru eftir Davíð benda til þess að hann sé ekki hættur í stjórnmálum. Ummæli seðlabankastjóra séu ekki við hæfi. „En það undirstrikar að við þurfum að fá nýja stjórn í Seðlabankann,“ segir hann. Venjan sé að seðlabankastjórar tali varlega og menn taki mark á því sem þeir segi. „Okkar seðlabankastjóri hefur ekki tamið sér vinnuhætti kollega sinna enda voru það mistök að skipa hann í Seðlabankann.“

„Ég held því fram að þetta séu hrokafyllstu yfirlýsingar sem ég hef heyrt af hálfu embættismanns á mínum ferli, þegar hann segir að hann ætli sér að gegna stöðu seðlabankastjóra í nokkur ár til viðbótar,“ segir Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins, um ummælin. Í þeim felist líka ákveðin hótun. „Hún fær mann til þess að hugsa þá hugsun hvort ekki ráði fagleg sjónarmið för hjá forsætisráðherra þegar hann aðhefst ekkert í sambandi við seðlabankastjórann.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trek Jet 20" 5 - 9 ára
Til sölu Trek barnahjól svart/blátt, lítur vel út, nýlegt afturdekk, alltaf geym...
Toyota Avensis 1800, árg. 2006 5 gíra.
Fæst á aðeins 1200 þús. stgr. Ek. 175 þús. Gott lakk og vel með farinn bíll. E...
Sturtuvagn óskast
Sturtuvagn óskast Í skiptum fyrir hest eða hesta. Upplýsingar í hestaregn@g...
Volvo Penta báta vél til sölu.48 hp
Vél í lagi , 48 hestafla nýtekinn úr bát vegna stækkunar á vél ca árg 86 Verð c...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...