Útifundur vegna alþjóðlegs átaks gegn ofbeldi

Börn úr Oddeyrarskóla syngja á útifundinum á Ráðhústorgi í dag. stækka

Börn úr Oddeyrarskóla syngja á útifundinum á Ráðhústorgi í dag. mbl.is/Skapti

Fundur fór fram undir kvöld á Ráðhústorginu á Akureyri, í tilefni 16 daga alþjóðlegs átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið er í ár tileinkað mannréttindayfirlýsingunni og aðgerðum til að tryggja konum þau réttindi sem hún kveður á um.

Átakið hófst 25. nóvember, en16 daga átak gegn kynbundu ofbeldi  er nú haldið í 18. sinn og hefur allan þann tíma unnið að því að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Hópar og samtök um allan heim hafa nýtt átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa þolendum ofbeldis, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta réttarstöðu þolenda. Þá hefur átakið verið nýtt til að stuðla að því alþjóðlegum mannréttindareglum sé beitt til að vinna gegn kynbundu ofbeldi sem mannréttindabroti, heilbrigðisvandamáli og ógn við mannfrelsi og frið um allan heim, skv upplýsingum Jafnréttisstofu.

Alþjóðleg mannréttindavernd og réttindi kvenna eiga undir högg að sækja og því er 16 daga átak árið 2008 tileinkað mannréttindayfirlýsingunni og aðgerðum til að tryggja konum þau réttindi sem hún kveður á um. Á Íslandi er  sjónum sérstaklega beint að því að standa vörð um mannhelgi og mannréttindi kvenna í efnahagskreppunni.

„Yfirskrift átaksins í ár 2008 er Mannréttindi kvenna eru ekki munaður!, til að leggja áherslu á að opinberar aðgerðir til að vernda mannréttindi kvenna eru ekki munaður sem kasta má fyrir róða þegar skórinn kreppir. Margt hefur áunnist undanfarin ár í baráttu gegn kynbundnu ofbeldi; íslensk stjórnvöld hafa gert ítarlega aðgerðaáætlun gegn ofbeldi á heimilum og kynferðisofbeldi og aðgerðaáætlun gegn mansali er í smíðum. Brýnt er að fyrirhugaður niðurskurður hins opinbera bitni ekki á framkvæmd þessara áætlana því vitað er að efnahagsþrengingar geta leitt til aukins kynbundins ofbeldis og bitna oft harðar á konum,“ segir í tilkynningu frá Jafnréttisstofu.

Meðal dagskráratriða á útifundinum á Ráðhústorgi í dag voru stutt ávörp, ljóðalestur og söngur Barnakórs Tónlistaskólans, Karlakórs Akureyrar og nemenda í 8. bekk í Oddeyrarskóla, auk þess sem kveikt var á kertum fyrir þolendur kynbundins ofbeldis. 

Þeir sem stóðu að að útifundinum voru Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar, Jafnréttisstofa, Aflið – systursamtök Stígamóta, Zontaklúbburinn Þórunn Hyrna, Zontaklúbbur Akureyrar, Menntasmiðja kvenna, UNIFEM á Íslandi, Norðurlandsdeild Ljósmæðrafélags Íslands og Norðurlandsdeild Hjúkrunarfélags Íslands.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Uppsetning Innréttinga.
Láttu fagmann vinna verkið. Reynsla í í Brúnás framleiðslu. Einnig endurbætur ...
Nú er vor í lofti og allir ættu að nýta sér þetta tilboð
Bónstöð Ragga í Garði kynnir Alþrif með bóni, lakkhreinsun og djúphreinsun á s...
Ónotaðir þakbogar á Honda CRV 2007 til 2012
Er með ónotaða þakboga frá umboðinu fyrir Honda CRV árgerð 2007 til 2012. Fást á...
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...