Samherji: 50 milljónir til samfélagsmála

Forráðamenn Samherja ásamt fulltrúm þeirra félaga og samtaka sem þeir veittu styrki í dag. stækka

Forráðamenn Samherja ásamt fulltrúm þeirra félaga og samtaka sem þeir veittu styrki í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Útgerðarfélagið Samherji á Akureyri tilkynnti í dag um 50 milljóna króna framlag til ýmissa samfélagsverkefna í höfuðstað Norðurlands, að lang mestu leyti er þar um að ræða fé sem skal verja til að lækka æfingagjöld barna og unglinga í íþróttum, eða kostnað við keppnisferðir þeirra, í vetur. Frændurnir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs tilkynntu um styrkina í hófi í Ketilhúsinu síðdegis, en það fór fram í tilefni þess að í dag eru 25 ár liðin frá því fyrsta skip Samherja, Akureyrin, fór í fyrstu veiðiferðina.

Þorsteinn Már sagði, þegar hann ávarpaði samkomuna í dag, að þeir hefðu alltaf lagt áherslu á að reka Samherja frá Eyjafjarðarsvæðinu og sækja starfsfólk á það svæði. „Við höfum stundum verið gagnrýnd fyrir þessa stefnu, en ég hygg að hún hafi reynst okkur vel. Samherji á sterkar rætur hér á Eyjafjarðarsvæðinu þótt félagið sé í dag alþjóðlegt sjávarútvegs- og matvælaframleiðslufyrirtæki og meðal þeirra fremstu í sinni röð í heiminum,“ sagði forstjórinn.

Samfélagsleg ábyrgð

„Samherji hefur í 25 ár verið hluti af samfélaginu hér og lengst af meðal stærstu fyrirtækja á svæðinu. Því fylgir ábyrgð og við höfum reynt að efla eftir bestu getu hag þess fólks sem hjá okkur starfar og fjölskyldna þess. Við höfum jafnframt reynt að láta samfélagið í kringum okkur njóta góðs af starfseminni með því að styrkja innviði þess með ýmsum hætti,“ sagði Þorsteinn Már ennfremur.

„Við höfum komið með mörg stór viðhalds- og  smíðaverkefni til Akureyrar gegnum tíðina, bæði á vegum Samherja á Íslandi og á vegum erlendra dótturfélaga okkar. Á þessu ári smíðaði Slippurinn til dæmis stóra vinnslulínu í eitt skipa okkar í Englandi og nú á haustmánuðum var Frost með stórt verkefni erlendis við breytingar á kælibúnaði í skipum á vegum Kötlu Seafood sem gerir út frystiskip við stendur Afríku.

Ómetanlegar forvarnir

Þorsteinn Már sagði þátttöku barna og unglinga í íþróttum ómetanlegan þátt í forvörnum og uppeldi. „Samherji vill efla þjálfun og annað starf félaganna og um leið stuðla að því að sem flest börn og unglingar geti stundað þær íþróttagreinar sem hugur þeirra stendur til, óháð efnahag heimilanna.“

Auk íþróttafélaga á Akureyri styrir Samherji líka æskulýðsstarf kirkjunnar á Akureyri og íþróttastarf barna og unglinga á Dalvík, þar sem fyrirtækið hefur lengi verið með öflugt frystihús.

Þá afhenti Samherji Hjartaheill og HL-stöðinni á Akureyri styrk til minningar um tvíburabræðurna Vilhelm og Baldvin Þorsteinssyni, feður Þorsteins Más og Kristjáns, en þeir létust báðir langt fyrir aldur fram.

Meðal þess sem Samherji tilkynnti í dag er að fyrirtækið verður aðalbakhjarl verkefnis sem ber vinniheitið Hreyfing og útivist, hugarfósturs Stefáns Gunnlaugssonar formanns KA og verður hleypt af stokkunum innan skamms. Það verður nánar kynnt síðar en einn þáttur þess er uppbygging útivistarperlunnar í Kjarnaskógi.

Samherjafrændurnir, Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson, ásamt Kolbrúnu Ingólfsdóttur, eiginkonu Kristjáns, í samkomunni í ...

Samherjafrændurnir, Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson, ásamt Kolbrúnu Ingólfsdóttur, eiginkonu Kristjáns, í samkomunni í Ketilhúsinu í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »
Þóra Arnórsdóttir ávarpaði gesti við opnun kosningamiðstöðarinnar í dag.

Gagnrýnir túlkun forseta Íslands

17:36 Helsta ógnun við stjórnskipun landsins er teygjanleg túlkun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á valdsviði forseta. Þetta sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi þegar hún opnaði kosningaskrifstofu sína í dag. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fallegur Snyrti og Nuddbekkur-Verð : 69.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur. 5 ára ábyrgð
www.simnet.is/eirikurs/nuddbord.html S: 8626194. Borð með baki til að hækka og ...
Hellur, garðhellur til sölu MEÐ 50% AFSLÆTTI
Hellurnar eru frá mest steypustöð og eru með granítyfirborði sem gerir þær mun s...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
Flugmiðar á frábæru verði til Alicante fram og tilbaka
Vegna forfalla eru til sölu flugmiðar fyrir fjóra til Alicante báðar leiðir. Br...
 
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...