Hross drapst við útafakstur

mbl.is/Björn A. Einarsson

Hross drapst þegar bíll með hestakerru fór út af veginum við Þorbergsstaði, skammt frá Búðardal fyrir stundu. Bíllinn hélst á hjólunum en kerran valt. Fjögur hross voru í kerrunni og varð eitt hrossanna undir kerrunni. Ekki var ljóst hvort hinum hrossunum þremur varð meint af byltunni. Þau voru teymd að Þorbergsstöðum þar sem verið er að skoða þau.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert