Þrettán ný svæði friðlýst

Friðlýst svæði og fyrirhugaðar friðlýsingar samkvæmt náttúruverndaráætlun. Fjöldi svæða sem friðlýst hafa verið á grundvelli ... stækka

Friðlýst svæði og fyrirhugaðar friðlýsingar samkvæmt náttúruverndaráætlun. Fjöldi svæða sem friðlýst hafa verið á grundvelli náttúruverndarlaga eða með sérlögum til náttúruverndar er nú 96 og þau ná yfir tæplega 20% af flatarmáli Íslands.

Þrettán ný svæði á Íslandi verða friðlýst á næstu fimm árum, samkvæmt þingsályktunartillögu umhverfisráðherra um náttúruverndaráætlun til næstu fimm ára. Þá er stefnt að friðlýsingu á annað hundrað plantna og dýra, þeirra á meðal tröllasmiðs, tjarnarklukku og brekkubobba. Tillagan kemur til fyrri umræðu á Alþingi á morgun.

Markmið náttúruverndaráætlunar 2009-2013 er að halda áfram að byggja upp net verndarsvæða til þess að tryggja verndun tegunda, líffræðilegrar fjölbreytni, landslags og náttúru.

Samkvæmt áætluninni verður eitt svæði friðað vegna jarðfræði, en það er Langisjór og nágrenni hans. Svæðið verður hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. Þá er lagt til að mörk friðlandsins í Þjórsárverum verði færð út til norðurs og suðurs þannig að það nái yfir allt votlendi og vistgerð veranna.

Í áætluninni er lögð áhersla á friðun svæða sem hafa að geyma sjaldgæfar plöntutegundir og tegundir í hættu. Lagt er til að 160 tegundir mosa, fléttna og háplantna verði friðlýstar, en það er mesta friðun tegunda sem ráðist hefur verið í hér á landi. Tegundir plantna hafa ekki verið friðlýstar síðan 1978.

Lagt er til að þrjár tegundir hryggleysingja verði friðaðar, en það yrði í fyrsta sinn sem dýrategundir yrðu friðaðar samkvæmt lögum um náttúruvernd. Nú eru tegundir fugla og spendýra friðaðar allt árið eða hluta af árinu með lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Í tillögunni að náttúruverndaráætlun 2009 – 2013 er lagt til að friðlýsing nái til eftirfarandi þrettán svæða:

Jarðfræðisvæði:

a) Langisjór og nágrenni. Langir móbergshryggir úr basalti, myndaðir við sprungugos undir jökli, einkenna svæðið. Eldgjársprungan liggur um svæðið austanvert og er lengsta gígaröð sem gosið hefur á landinu á sögulegum tíma. Langisjór og umhverfi hans er þekkt fyrir náttúrufegurð þar sem dökkbrúnt móbergið ásamt svörtum vikrinum frá Veiðivatnagosinu 1477 kallast á við tært fjallavatnið og mosagróður í fjallahlíðum. Á svæðinu er einstakt samspil jarðelds og jökla við mótun landsins.

Vistgerðir:

a) Orravatnsrústir norðan Hofsjökuls. Þar er að finna sérstæðasta freðmýrasvæði landsins.

b) Stækkun friðlands Þjórsárvera og styrking á friðlýsingarákvæðum Guðlaugstungna. Til að vernda rústamýravist.

c) Stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs með friðun svæða í Skaftártungum og á Síðuafrétti. Mikið er um breiskjuhraunavist í þeim hluta þjóðgarðsins sem tilheyrði áður friðlandi umhverfis Lakagíga.

Plöntusvæði:

a) Snæfjallaströnd – Kaldalón. Mikilvægt svæði fyrir sjaldgæfar háplöntur, m.a. dílaburkna, stóraburkna, fjöllaufung, þúsundblaðarós, fjallabláklukku, skollaber og sandmunablóm.

b) Eyjólfsstaðaskógur. Þar finnst fjöldi sjaldgæfra fléttna sem ásætur á birki.

c) Egilsstaðaskógur og Egilsstaðaklettar. Merkileg svæði fyrir fjölda sjaldgæfra fléttna sem þrífast sem ásætur á birki þessara svæða.

d) Skóglendi við Hoffellsjökul. Einstakt gróðurfar og sjaldgæfar plöntur.

e) Steinadalur í Suðursveit. Vegna gróðurfars og sjaldgæfra plantna.

f) Gerpissvæðið. Á svæðinu er sérstætt gróðurfar, en á svæðinu finnast allnokkrar sjaldgæfar háplöntutegundir eins og fjöllaufungur, lensutungljurt, sóldögg, álftalaukur, mýraberjalyng, bjöllulilja, sifjarsóley o.fl. Svæðið er vinsælt til útivistar.

Verndarsvæði fyrir smádýr/hryggleysingja:

a) Undirhlíðar í Nesjum. Búsvæði tröllasmiðs.

b) Hvannstóð undir Reynisfjalli. Búsvæði brekkubobba.

c) Tjarnasvæði á Innrahálsi í Berufirði. Búsvæði tjarnarklukku.


Áhersla verður lögð á gott samstarf við landeigendur, viðkomandi sveitarstjórnir og heimamenn við framkvæmd 2. náttúruverndaráætlunar og verður gerð grein fyrir framkvæmd hennar, auk annarra friðlýsinga sem hugsanlega verður ráðist í, í árlegri skýrslu umhverfisráðherra til Alþingis.

Heildarkostnaður við Náttúruverndaráætlunina á tímabilinu er áætlaður um 67 milljónir króna á verðlagi ársins 2008. Þar af er stofnkostnaður 50 milljónir en heildar rekstrarkostnaður er 17 milljónir króna.

Friðlýst svæði 20% af flatarmáli landsins

Fjöldi svæða sem friðlýst hafa verið á grundvelli náttúruverndarlaga eða með sérlögum til náttúruverndar á landinu er nú 96 og er flatarmál þeirra um 19.500 km2, sem samsvarar tæplega 20% af flatarmáli Íslands.

Stærsta verkefnið í núgildandi náttúruverndaráætlun var stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Hann var formlega stofnaður með reglugerð í júní. Vinna við önnur svæði á þeirri áætlun hefur hins vegar gengið hægar en vonir stóðu til. Reynslan sýnir að friðlýsingarferlið getur verið þungt í vöfum og tímafrekt. Búið er að friðlýsa eitt svæði, Guðlaugstungur, samkvæmt henni og tvö svæði til viðbótar verða væntanlega friðlýst fyrir lok árs 2008, þ.e. Vatnshornsskógur og búsvæðavernd fugla í Heimaey og úteyjum Vestmannaeyja. Vinnu og undirbúningi við friðlýsingu annarra þriggja svæða er vel á veg komin. Vinna við fjögur svæði á gildandi áætlun, þ.e. Öxarfjörð, Flateyjardal, Skeiðarársand og Geysi, auk hluta af svæðum á Reykjanesskaganum, hefur gengið hægar og verið í biðstöðu upp á síðkastið.

Við undirbúning tillagna að náttúruverndaráætlun 2009- 2013 hefur verið lögð áhersla á samráð við landeigendur og viðkomandi sveitarfélög.

Önnur svæði hafa verið friðlýst frá 2003 þrátt fyrir að hafa ekki verið á náttúruverndaráætlun. Þrír fólkvangar hafa verið friðlýstir: Hraun í Öxnadal, Krossanesborgir og Einkunnir, eitt náttúruvætti, þ.e. Arnarnesstrýtur í Eyjafirði og friðland við Vífilsstaðavatn. Auk þess var Surtseyjarfriðland stækkað árið 2006 í tengslum við tilnefningu eyjarinnar á heimsminjalista UNESCO og nær friðlandið nú yfir eyjuna, hafsvæðið og hafsbotninn umhverfis eyjuna.

Þessi 96 svæði sem nú eru friðlýst skiptast þannig eftir friðlýsingarflokkum (Þingvallaþjóðgarður er flokkaður sem þjóðgarður þótt hann sé friðlýstur með sérlögum):    

Fjöldi

Stærð í ha.

Þjóðgarðar

3

1.145.000

Sérlög

3

427.000

Náttúruvætti

35

29.000

Friðlönd

38

327.000

Fólkvangar

16

42.000

Búsvæði

1

1.744

Auk friðlýstra svæða og náttúruvætta hefur 31 plöntutegund verið friðlýst. Jafnframt eru allir dropsteinar í hellum landsins friðlýstir.

PDF-skrá Náttúruverndaráætlun 2009-2013
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ - TILBOÐ Dömuskór úr leðri með korks...
Framstuðari á PT. Crushier 2005-8
Til sölu splunkunýr framstuðari. Fullt verð hér 135 þús.(Uppgefið Bíljöfur). Ég...
Sumarhús 45-55m2
Óska eftir sumarhúsi á hvaða byggingastigi sem er til fluttnings. Myndir og upp...
Touareg árg.2005
VW v:2,29 mkr, glæsilegur bíll v8 bein innspýtingu sjálfsk. e105 þkm. ný dekk, S...
 
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...