9,7% atvinnuleysi á Suðurnesjum
Á annað hundrað manns mætti á íbúafund með Árna Sigfússyni bæjarstjóra í Reykjanesbæ sem haldinn var í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í gær en þar var fjallað um verkefni sem eru framundan í bæjarfélaginu árið 2009 s.s. álver í Helguvík, gagnaver, kísilver, auðlindagarð, ferðasegla, frumkvöðlasetur og nýsköpun.
1.047 eru skráðir atvinnulausir á Suðurnesjum sem er 9,7% af vinnuafla svæðisins og er atvinnuleysi hvergi jafn mikið hlutfallslega séð.
Í fréttatilkynningu er haft eftir Árna Sigfússyni bæjarstjóra að tilgangur fundarins hafi verið að gera milliliðalaust grein fyrir ástandi í atvinnulífi í Reykjanesbæ, draga fram lausnir og veita eins skýrar upplýsingar og mögulegt væri um þau atvinnutækifæri sem eru framundan.
Kom fram á fundinum að fjöldi verkefna sem skapa munu mörg störf á svæðinu eru langt á veg komin og má þar nefna álver og, kísilverksmiðju í Helguvík, gagnaver Verne Holding á Vallarheiði auk uppbyggingar háskólastarfsemi á Vallarheiði. Stefnt er að því að styðja vel við þá sem eru atvinnulausir með nýju verkefni sem nefnist Virkjun og er miðja til að skapa ný atvinnutækifæri.
Norðurál með framkvæmdir fyrir 12-15 milljarða
Framkvæmdir Norðuráls í ár á Suðurneskum í ár eru áætlaðar nema 12 - 15 milljörðum króna en framkvæmdir við álver í Helguvík hófust sl. sumar. Verkefnið er nú í endurskoðun sem mun taka nokkra mánuði.
„Norðurál leggur áherslu á stuðning stjórnvalda en í nýrri áætlun þeirra er gert ráð fyrir að mun fleiri störf verði unnin á Íslandi en áður, svo sem verktaka- og verkfræðiþjónusta. Fjárfesting í álverinu er áætluð um 1,8 milljarður Bandaríkjadala, 800-1200 störf við byggingu álversins og heildarfjöldi starfa með tengdum framkvæmdum og afleiddum störfum frá 3000 - 5000 í 4-6 ár," að því er segir í tilkynningu.
Kísilverksmiðja í Helguvík hefur tryggt fjármögnun, lokið umhverfismati og er gert ráð fyrir að starfsleyfi verði gefið út síðar í mánuðinum. Enn skortir þó raforku. Gert er ráð fyrir því að verksmiðjan verði reist 2009 - 2011 og er gert ráð fyrir 150 störfum á byggingartíma sem er tvö ár. Í fullum rekstri verða 90 starfsmenn í verksmiðjunni á vöktum. Aðrir áfangir gera ráð fyrir auknum störfum. Áætlaður kostnaður vegna fyrsta áfanga er um 110 milljón evrur.
Verne Holding mun halda áfram með uppbyggingu gagnavers á Vallarheiði. Fyrirtækið hefur fest kaup á húsnæði á Vallarheiði sem stækkunarmöguleikum upp í 80.000 fermetra. Stendur fyrir dyrum að hefja rekstur 2010.





































