Eftirstöðvar gengistryggðra lána minnka
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is
Styrking krónunnar kemur strax fram á gengistryggðum lánum. Eftirstöðvar þeirra lækka og það sama á við um greiðslur á gjalddaga.
Krónan styrktist um tæp 20% í síðustu viku eftir að hún var sett á flot á fimmtudag. Eftirstöðvar gengistryggðra lána ættu að hafa lækkað um svipað hlutfall. Hver lækkunin er raunverulega er þó háð þeim myntum sem lánið miðast við, en höfuðstóllinn breytist á hverjum tíma í hlutfalli við breytingar á gengi hverrar myntar fyrir sig.
Varðandi lækkun á greiðslum á gjalddaga, sem er einnig í stórum dráttum í takti við styrkingu krónunnar, ber að hafa í huga, að þær miðast alla jafna við gengið ákveðnum dagafjölda fyrir gjalddagann. Algengt er til að mynda að reikna greiðslurnar allt að tíu dögum fyrir gjalddaga.
Útilokað er hins vegar að álykta eitthvað um áhrifin af styrkingu krónunnar í síðustu viku á verðlagið í landinu, að sögn Andrésar Magnússonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, SVÞ. Hann segir að styrking krónunnar í tvo daga, eftir að hún var sett á flot á fimmtudag, sé allt of skammur tími til að leggja grundvöll að miklum vangaveltum eða ályktunum um hvert framhaldið verður.
„Hins vegar er ljóst, að ef krónan styrkist áfram eins og hún gerði á fimmtudag og föstudag í síðustu viku, þá verður auðveldara að verðleggja innfluttar vörur. Þetta leiðir af sjálfu sér,“ segir Andrés.
Gengið er afgerandi stærð varðandi verðlagið í landinu, að sögn Andrésar. Hann segir að gríðarlega miklu máli skipti að gengisvísitalan komist á stig sem sé ásættanlegt til að mæta bæði hagsmunum innflytjenda og útflytjenda. Þróunin í síðustu viku gefi hins vegar ekki tilefni til að ráða í hvert framhaldið verður, enn sem komið er. Ljóst sé að mikill meirihluti fyrirtækja sé með erlend lán, og langflest þeirra séu blanda af svissneskum frönkum og japönskum jenum, en enginn gjaldmiðill hafi styrkst meira gagnvart íslensku krónunni en einmitt jenið. Því sé mikið í húfi að gengið haldi áfram að styrkjast.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn M Friðgeirsson Ætli þetta hangi ? -
Guðmundur Andri Skúlason Ójá... takk... TAKK !!! -
Ómar Ragnarsson Gamalkunnugt ferli. -
Salvör Kristjana Gissurardóttir Hver vaktar þitt heimili? - Ekki íslenskir fjölmiðlar
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. febrúar 2009, Innlent Eftirstöðvar erlenda lánsins nærri 60% meiri en þess verðtryggða
- Fimmtudagur, 8. janúar 2009, Innlent Við hvað skal miða við yfirfærslu lána?
- Föstudagur, 5. desember 2008, Innlent Greiddu 50 þúsund vegna skilmálabreytinga húsnæðislána
- Miðvikudagur, 8. apríl 2009, Innlent Íbúðalán í greiðslujöfnun
- Þriðjudagur, 18. mars 2008, Innlent Höfuðstóllinn hækkar hratt við 25% gengisfall
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































