Einn handtekinn við Ráðherrabústaðinn

Einn var handtekinn eftir að til ryskinga kom á milli lögreglu og um tuttugu mótmælenda við Ráðherrabústaðinn í morgun. Samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni virti viðkomandi ekki lokanir lögreglu né hlýddi fyrirmælum hennar.

Lögregla og einhverjir mótmælendur eru enn á staðnum.  Þá eru flestir ráðherrar ríkisstjórnarinnar í húsinu en þar hafði verið boðaður  hefðbundinn ríkisstjórnarfundur.    

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert