Saka forstjóra um blekkingar
Lögð voru fram gögn í Héraðsdómi Reykjavíkur morgun sem stefnefndur telja sanna að blekkingum hafi verið beitt. Þorkell Þorkelsson
Í máli Insolidum, sem er í eigu Daggar Pálsdóttur hrl. og varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins og Páls Ágústs Ólafssonar sonar hennar, er forstjóri Saga Capital, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, sakaður um að hafa beitt blekkingum er stofnfjárbréf í SPRON voru seld Insolidum í fyrra. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Eigendur Insolidum telja Þorvald Lúðvík og Gunnar Þór Gíslason, forsvarsmann Sundagarða ehf. og einn eiganda Saga Capital, hafa misnotað aðstöðu sína til þess að koma í umferð stofnfjárbréfum í SPRON á sumarmánuðum í fyrra. Til þess hafi þeir notfært sér innherjaupplýsingar, meðal annars verðmat sem lagt hafði verið fram í stjórn SPRON áður en viðskipti Insolidum áttu sér stað en Gunnar Þór var þá í stjórn SPRON. Verðmatið sagði til um að SPRON væri um 59 milljarða króna virði miðað stöðuna í lok mars í fyrra.
Neitar að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar
Gunnar Þór hefur neitað því að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar en regluvörður SPRON heimilaði honum að selja bréfin, líkt og öðrum stjórnarmönnum sem seldu bréf á þessum tíma. Það voru Hildur Petersen, sem þá var stjórnarformaður, og Ásgeir Baldurs stjórnarmaður. Eigendur Insolidum halda því fram að raunverulegur eigandi bréfanna sem Insolidum keypti hafi verið Sundagarðar en ekki Saga Capital, og um það hafi forsvarsmenn bankans ekki upplýst. Saga Capital hafi þannig verið að aðstoða Sundagarða við að selja bréfin, á grundvelli upplýsinga sem stjórnarmenn í SPRON höfðu, án þess að um það væri upplýst opinberlega. Þessu hafa lögmenn Saga Capital neitað staðfastlega fyrir dómi og sagt að Saga Capital hafi átt bréfin.
Nokkrir stofnfjáreigendur í SPRON hafa formlega kært til lögreglu þá ráðstöfun fyrrum stjórnar SPRON að tilkynna ekki um sölu stjórnarmanna SPRON á stofnfjárbréfum, eftir að ákvörðun um að stefna að skráningu SPRON á markað var tekin.
Hundruðu milljóna viðskipti
Insolidum leitaði til Saga Capital með það í huga að fá hjá lán hjá bankanum á sumarmánuðum í fyrra. Saga Capital bauð Insolidum stofnfjárbréfin gegn lánafyrirgreiðslu. Úr varð að Insolidum keypti stofnfjárbréf í SPRON með lánsfé frá bankanum, fyrir 566 milljónir króna. Alls voru það um 47,5 milljónir stofnfjárhluta. Lánsfjárhæðin var 582 milljónir þar af 5,82 milljóna króna lántökugjald og tíu milljóna króna viðbót ætluð til frekar kaupa á stofnfjárbréfum. Gengið var frá kaupum á lánasamningnum 3. ágúst í fyrra.
Í kjölfar mikils verðfalls á hlutabréfum, meðal annars í SPRON eftir að sjóðurinn var skráður á markað í október í fyrra, kallaði Saga Capital eftir auknum tryggingum fyrir fyrrnefndu láni. Eftir nokkrar deilur fór Saga Capital með málið fyrir dóm og krafðist þess að fá að taka yfir félagið. Insolidum var ekki tilbúið til þess og taldi ekki forsendur fyrir slíku. Hæstiréttur hafnaði kröfu Saga Capital að lokum. Þá krafðist Saga Capital þess að Insolidum væri lýst gjaldþrota. Á það féllst Hæstiréttur og hefur Insolidum nú þegar verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Lögð voru fram gögn í morgun að hálfu stefnenda í málinu, Insolidum ehf., sem eigendur félagsins telja sanna að félagið hafi verið látið kaupa bréf af Sundagörðum ehf. þvert á það sem forsvarsmenn Saga Capital hafa sagt.
Málinu var frestað til 15. janúar meðal annars þar sem til skoðunar er að stefna forsvarsmönnum Sundagarða sérstaklega í ljósi gagnanna sem lögð voru fram í morgun.





































