Siðmennt fagnar áliti Jafnréttisstofu
Stjórn Siðmenntar, félags siðrænna húmanista, fagnar yfirlýsingu Jafnréttisstofu þess efnis að sjálfkrafa skráning ungabarna í trúfélag móður, standist tæpast ákvæði jafnréttislaga.
Lögfræðingur jafnréttisstofu telur að breyta þurfi því ákvæði laga um skráð trúfélög, sem kveður á um að barn skuli frá fæðingu skráð í sama trúfélag og móðir þess. Lögfræðingur Jafnréttisstofu segir að þetta ákvæði sé tæpast í samræmi við ákvæði jafnréttislaga. Ekki séu neinir hagsmunir, hvorki fyrir nýfætt barn né aðra, að það sé sjálfkrafa skráð í trúfélag.
Stjórn Siðmenntar fagnar álitinu og segir það í samræmi við þá skoðun stjórnarinnar að ekki eigi að skrá börn í trúfélög eða veraldleg lífsskoðunarfélög foreldra því börn á ekki að setja í bás eftir skoðunum foreldra þeirra.
Siðmennt telur að við 16 ára aldur, hið fyrsta, sé rétt að ungmenni geti skráð sig formlega í þessi félög, því forsenda slíkrar ákvörðunar sé ákveðinn þroski, sjálfstæði og menntunarstig.
„Líkt og með stjórnmálaflokka á það ekki að vera í valdi foreldra að skrá börn sín í trúarleg eða veraldleg lífsskoðunarfélög, heldur á það að vera sjálfstæð ákvörðun hvers einstaklings þegar viðkomandi hefur aldur til. Jafnframt álítur stjórn félagsins að þessi tillaga Jafnréttisstofu sé tímamótatillaga í átt til afnáms mismununar á rétti foreldra eftir kyni þeirra,“ segir í tilkynningu Siðmenntar.
Bloggað um fréttina
-
Kristinn Theódórsson Siðmennt á hrós skilið -
Brjánn Guðjónsson Hálft hænuskref -
Kristján H Theódórsson Vonandi verður farið að virða trúfrelsið! -
-
Óttarr Guðlaugsson Sérkennileg yfirlýsing Siðmenntar -
Morten Lange Vill Alþingið jafnrétti í trúmálum ?
Innlent »
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. desember 2008, Innlent Sjálfvirk skráning í trúfélög andstæð jafnréttislögum
- Miðvikudagur, 11. mars 2009, Innlent Endurskoða sjálfkrafa skráningu í trúfélög
- Föstudagur, 13. mars 2009, Innlent Ekki sjálfgefið að trúin sé meðfædd
- Miðvikudagur, 1. júlí 2009, Innlent Segja fjárlög mannréttindabrot
- Miðvikudagur, 25. nóvember 2009, Innlent 44% lækkun á rétt rúmu ári
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































