Auglýsti andlát samfanga síns
Refsifangi á Litla Hrauni er grunaður um að hafa sent tilkynningu um andlát samfanga síns en tilkynningin birtist í Morgunblaðinu í morgun. Birt er reikningsnúmer með tilkynningunni í þeim tilgangi að fé verði lagt inn á reikninginn.
Í Morgunblaðinu í dag birtist tilkynning um andlát Hákons Rúnars Jónssonar en hann afplánar nú nokkurra mánaða fangelsisdóm á Litla Hrauni. Í auglýsingunni segir að maðurinn hafi látist eftir langvarandi veikindi og er þeim sem vilja minnast hans bent á reikningsnúmer. Reikningurinn og kennitala sem upp er gefin er í eigu Sigurbjörns Adams Baldvinssonar, fanga á Litla Hrauni en hann afplánar dóm fyrir margháttuð afbrot.
Auglýsingin er uppspuni frá rótum og virðist hafa verið send frá Litla Hrauni í þeim tilgangi einum að svíkja út fé af fólki.
Páll Winkel, fangelsismálastjóri segist ekki muna eftir öðrum eins ósóma. „Þetta er með því ósmekklegra sem ég hef séð. Málið verður rannasakað til hlítar. Strax í morgun voru tölvur fanga sem grunaðir eru um verknaðinn, haldlagðar og verða þær skoðaðar. Þá verða teknar skýrslur af föngunum en málið verður síðan afhent lögreglu,“ segir Páll Winkel, fangelsismálastjóri.
Páll segir að fangar hafi tölvur á herbergjum sínum og takmarkaðan aðgang að netinu vegna fjarnáms en þá undir eftirliti. Hins vegar færist í vöxt að svokölluðum netpungum sé smyglað inn í fangelsið, en þeir tengja tölvur við netið með svokölluðu 3G sambandi. Páll segir að töluvert sé um að slíkir netpungar séu haldlagðir. Sama á við um farsímanotkun fanga, farsímar eru bannaðir innan veggja fangelsanna. Nokkrir símar eru haldlagðir í hverjum mánuði.
Páll Winkel segir að agaviðurlög verði ákveðin gagnvart föngunum þegar málið hafi verið rannsakað til hlítar. Þá segir hann ekki ólíklegt að brot fanganna leiði til endurskoðunar á tölvunotkun refsifanga í fangelsum landsins.
Morgunblaðinu þykir miður að hafa verið blekkt með þessum hætti. Reikningnum sem nefndur er í auglýsingunni, hefur verið lokað.
Bloggað um fréttina
-
Karl Jónsson Nýstárleg fjáröflun -
Bergur Thorberg Ekki í fyrsta skipti.... -
Ingimar Eggertsson Bráð fyndið. -
Heiðar Már Guðlaugsson Ósmekklegt en fyndið -
Kristberg Snjólfsson Ekki er öll vitleysan eins -
Björn Finnbogason Skömminni skárra en hlutabréfakaup þó! -
Stefán Friðrik Stefánsson Siðlaus og ósmekkleg dánartilkynning -
Þórarinn M Friðgeirsson Auglýsti andlát samfanga síns - allt er nú til.. -
Brynja Dögg Ívarsdóttir Andlátstilkynningar -
Sigurbjörg Dánartilkynning? -
Jóhannes Ragnarsson Bláfátækur tukthúsmaður fórnarlamb armanikrimma -
María Anna P Kristjánsdóttir Ástkær sambýlis maður minn á Litla Hrauni... -
Þorgeir Pálsson Dánartilkynning
Innlent »
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 12. desember 2008, Innlent Lokað fyrir netaðgang fanga
- Fimmtudagur, 2. júlí 2009, Innlent Dæmdur fyrir falsaða dánartilkynningu
- Fimmtudagur, 11. desember 2008, Innlent Grín sem gekk of langt
- Mánudagur, 31. mars 2008, Innlent Fangi stunginn með sporjárni í rasskinn
- Laugardagur, 16. ágúst 2008, Innlent Ný eining byggð við Litla-Hraun
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































