Nefskattur vegna RÚV verður hærri en afnotagjaldið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Takmarkanir verða settar á möguleika Ríkisútvarpsins til afla tekna af auglýsingum, skv. frumvarpi menntamálaráðherra til breytinga á lögum um Ríkisútvarpið ohf., sem lagt var fram á Alþingi í dag.

Meðal annars er óheimilt að sýna auglýsingar sem beinast að börnum í 10 mínútur fyrir og eftir útsendingu slíks efnis.

Nefskattur verður tekinn upp í stað afnotagjalds; einstaklingur og lögaðilar greiði 17.900 krónur á ári en afnotagjaldið á hvert heimili er nú 35,940 krónur. Í upphaflegum lögum um RÚV ohf. var gert ráð fyrir að nefskatturinn væri 14.580 kr. Hann mun renna beint í ríkissjóð en í sérstökum þjónustusamningi milli RÚV og ríkisins verði stofnuninni tryggðar tekjur.

Í frumvarpinu segir meðal annars: 
  • Ríkisútvarpinu ohf. er óheimilt að afla tekna með kostun, nema þegar um er að ræða tiltekna stórviðburði.
  • Hlutfall auglýsinga af daglegum útsendingartíma Ríkisútvarpsins ohf., að kjörtíma undanskildum, skal ekki vera hærra en 10%. Á kjörtíma skal þetta hlutfall eigi vera hærra en 5%. Kjörtími telst útsendingartíminn frá kl. 19.00 til 22.00.  
  • Hver auglýsingatími skal vera innan við 200 sekúndur. Ekki skulu vera fleiri en tveir auglýsingatímar á hverri klukkustund útsendingar.
  • Óheimilt er að rjúfa dagskrárliði sem eru styttri en 45 mínútur með auglýsingatíma.
  • RÚV verður óheimilt að afla tekna með vöruinnsetningu, þ.e. að semja við framleiðendur vöru og þjónustu um óbeina kynningu á vörum þeirra eða þjónustu með innsetningu þeirra í sviðsmyndir og hvers konar umfjöllun sem kann að hafa
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert