Hallinn yfir 150 milljarðar

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. Ómar Óskarsson

Halli ríkissjóðs mun aukast mikið á næsta ári og verða yfir 150 milljarðar króna samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þegar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar var fyrst kynnt þann 1. október var hallinn áætlaður um 57 milljarðar króna. Vonir standa til að önnur umræða um fjárlög fari fram á Alþingi á mánudag.

Gert er ráð fyrir að tillögur ríkisstjórnarinnar um niðurskurð útgjalda og ný  tekjuáætlun verði lagðar fram á fundi fjárlaganefndar Alþingis á morgun en samkvæmt tekjuáætluninni munu tekjur ríkissjóðs dragast saman um 70 til 80 milljarða króna á næsta ári.

Gert er ráð fyrir að hægt verði mjög á nokkrum stofnframkvæmdum á borð við byggingu nýs hátæknisjúkrahúss, lagningu Sundabrautar og uppbyggingu á nýrri fangelsisbyggingu við Litla-Hraun. Frekari áætlanir um niðurskurð verða kynntar af ríkisstjórn fljótlega.

Í fjárlagafrumvarpinu voru tekjur ríkissjóðs á næsta ári áætlaðar 450,5 milljarðar króna og útgjöld 507,4 milljarðar króna. Hallinn átti því að vera um 57 milljarðar króna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert