Lögreglan segir rannsókn á amfetamínverksmiðju ganga vel

Tæki og tól í fíkniefnaverksmiðjunni. stækka

Tæki og tól í fíkniefnaverksmiðjunni. mbl.is

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir rannsókn á amfetamínverksmiðju, sem fannst í Hafnarfirði í október, ganga vel. Lagt var hald á ýmsan búnað, sem tengdist framleiðslunni, svo sem frystikistur, rafmagnsviftur, suðutæki, hrærivélar, hitastýringartæki, grammavogir, blandara, bakarofn með hellum, stáltunnur og ýmsan sérhæfðan glerbúnað.

Þrír karlmenn sátu um tíma í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins en tveir þeirra afplána nú dóma vegna annarra mála og sá þriðji er laus úr haldi. Mennirnir voru handteknir 16. október sl. en sama dag voru gerðar húsleitir á tveimur stöðum í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Á báðum stöðunum fannst búnaður sem tengist umræddri starfsemi og var hann haldlagður.

Við húsleitirnar tók lögreglan líka í sína vörslu um 18,2 kg af hassi og tæplega 700 grömm af amfetamíni. Jafnframt var lagt hald á liðlega 3500 millilítra af BMK, sem er þekkt upphafsefni og/eða milliefni í framleiðslu amfetamíns eða metamfetamíns, og 38 kg af P-2-NP sem er efni sem er notað í sama tilgangi.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
"IKEA"- hillur til sölu.
"IKEA" hillur til sölu. 5 stk. B 80cm, og D 50cm. Uppistöður 2 m. og krossband....
Lyngborgir.is. Sumarhúsalóðir
Til sölu eignarlóðir í Grímsnesi. Stærðir 5800 fm-8700 fm gott verð. 75 km frá ...
ÞRÍTUG MÓÐIR MEÐ 6 ÁRA GAMLAN SON ÓSKAR
Þrítug móðir með 6 ára gamlan son óska...
2-3 herb.íbúð óskast til kaups
Óska eftir 2-3h. íbúð á Reykjavíkur sv. vinsamlegast sendið staðs. og verð á net...
 
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Akstur fyrir strætó

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...