Samið við SÁÁ um búsetuúrræði

Stella Kr. Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, og Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, skrifuðu í dag samstarfssamning vegna búsetuúrræðis með félagslegum stuðningi fyrir áfengis- og vímuefnaneytendur í bata.

Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í október sl. tillögu þess efnis að gengið yrði til samninga við SÁÁ um rekstur á nýju búsetuúrræði með félagslegum stuðningi. Úrræðið er samvinnuverkefni Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og félags- og tryggingamála-ráðuneytisins.

Um er að ræða búsetuúrræði fyrir allt að 20 einstaklinga sem hætt hafa neyslu áfengis- eða vímuefna en þurfa á umtalsverðum stuðningi að halda til að ná tökum á lífi sínu. Markmiðið með búsetuúrræðinu er að veita húsaskjól, félagslegan stuðning og hæfingu þannig að íbúar geti í framhaldinu búið sjálfstætt og tekið virkan þátt í samfélaginu án vímugjafa. 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert