Skapa þarf svigrúm til framkvæmda
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra leggja þunga áhersla á mikilvægi þess að sveitarfélögunum verði skapað svigrúm til að halda úti framkvæmdum og þar með atvinnustigi með aðgengi að fjármagni. Sveitarfélögin eru að leggja lokahönd á fjárhagsáætlanir næsta árs og er ljóst að verulegur halli verður á rekstri þeirra á næsta ári. Miðað við stöðu sveitarfélaganna er ljóst er að verulegur samdráttur verður í framkvæmdum á þeirra vegum að óbreyttu.
Í vikunni fóru sveitarstjórar á Norðurlandi vestra sameiginlega yfir forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga á svæðinu. Í fundargerð segir að ljóst sé að sveitarfélögin á svæðinu muni eiga erfitt með að ná endum saman og flest þeirra séu mjög háð framlagi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Á fundinum var einnig rætt um viðbragsáætlanir sveitarfélagana og stöðu atvinnumála á svæðinu.
Í sveitarfélaginu Skagafirði þarf að stoppa í um 400 milljóna króna gat í fjárhagsáætlun. Launaliðir hækka um 8% en tekjur dragast saman um 10%. Gripið verður til hagræðingaraðgerða og eru meðal annars hugmyndir um að takmarka fasta og óunna yfirvinnu. Þá verður gjaldskrá sorphirðu hækkuð en hækkun annarra gjaldskráa verður takmörkuð. Sveitarfélagið telur ekki mikið svigrúm til hækkunar á fasteignaskatti nema helst á fráveitugjaldi. Í Skagafirði er pólitískur vilji til þess að halda úti miklum framkvæmdum og viðhaldi en það stjórnast að aðgengi að lánsfé. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun 2009 verður í sveitarstjórn að viku liðinni en fjárhagsáætlun verður ekki afgreidd fyrr en eftir áramót.
Í Fjallabyggð er svipaða sögu að segja og ljóst að komandi ár mun verða afar erfitt rekstrarár. 95 milljóna króna halli er á áætlun næsta árs. Launaliðir hækka um 5% og gert er ráð fyrir tekjusamdrætti upp á 5%. Í fjárhagsáætlun næsta árs er gert ráð fyrir 5% hækkun á þjónustugjaldskrám. Búið er að skera niður námskeið og ferðakostnað um 50% og bæjarfulltrúar lækka í launum um 10%. Þá verður farið í saumana á fastri yfirvinnu og akstri. Ekki er gert ráð fyrir viðhaldi eða framkvæmdum. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun 2009 var á þriðjudag en áætlunin verður afgreidd um miðjan janúar.
Í fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps fyrir næsta ár er tæplega 30 milljóna króna halli. Hreppurinn er mjög háður framlagi jöfnunarsjóðs, sem er um 50% af tekjum sveitarfélagsins. Í áætlun næsta árs er gert ráð fyrir nær óbreyttum gjaldskrá, en sorphirða og sorpeyðing hækkar um 25%. Fyrri umræða um áætlun næsta árs fór fram um miðjan nóvember en ákveðið var að fresta seinni umræðu fram yfir áramót.
Í Húnaþingi vestra er 114 milljóna króna gat í fjárhagsáætlun næsta árs en tekjur sveitarfélagsins dragast saman um 10%. Gert er ráð fyrir að allar gjaldskrár taki breytingum nema gjaldskrá fyrir leikskóla. Ekki er áformuð hækkun á fasteignagjöldum en miðað er við að unnið verði að einhverjum framkvæmdum. Það er þó háð aðgengi að lánsfé. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun næsta árs fer fram í dag og seinni umræða að viku liðinni. Gert er ráð fyrir að áætlunin verði endurskoðuð í apríl 2009.





































