2½ milljarður í súginn
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is
Ef ekki verður hægt að frysta síld það sem eftir er af vertíðinni verður útflutningsverðmæti síldarafurða á vertíðinni 2,5 milljörðum króna minna en annars hefði orðið. Frystihúsin láta meta hvern farm fyrir löndun en svo mikill hluti aflans er sýktur að ekki er talinn grundvöllur fyrir frystingu. Aflinn er því bræddur í mjöl og lýsi.
Sjómenn hafa verið að leita fyrir sér víða en sníkjudýrið virðist vera í allri síld, jafnt smárri sem stórri. Tvö skip voru í gær við leit í Ísafjarðardjúpi og Jökulfjörðum en köstuðu ekki því skipstjórarnir töldu flekki við botn „smásíldarlega“. Mesta veiðin hefur áfram verið á Breiðafirði.
Í gær nam heildarafli af íslensku sumargotsíldinni liðlega 105 þúsund tonnum af tæplega 150 þúsund tonna kvóta. Sumar útgerðir eru að ljúka við kvóta sinn á meðan aðrar eiga mikið eftir.
Útflutningsverðmæti síldarafurða á vertíðinni var áætlað 14-16 milljarðar króna og var í þeim tölum reiknað með frystingu á stórum hluta kvótans. Náist ekki að hefja frystingu á nýjan leik, sem Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, telur þó að ætti að vera hægt, minnka verðmætin um nærri hálfan þriðja milljarð kr.
Ef 30-40% hrygningarstofnsins drepast vegna sýkingarinnar, eins og fyrstu athuganir benda til, samsvarar það því að kvóti einnar og hálfrar síldarvertíðar fari forgörðum í vetur. Útflutningsverðmæti þess afla gæti numið 20-25 milljörðum kr. Málið lítur enn verr út því sýkin gæti verið lengur í stofninum. Þá virðist hún ekki síður leggjast á ungsíld. Friðrik óttast að stofninn verði mörg ár að ná sér.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 6. júní 2008, Innlent Fyrsta skóflustunga að álveri
- Miðvikudagur, 3. desember 2008, Innlent Freista þess að finna ósýkta síld
- Mánudagur, 14. desember 2009, Innlent Metár hjá Berki NK-122
- Sunnudagur, 12. október 2008, Innlent Á síld innan við Stykkishólm
- Mánudagur, 5. október 2009, Innlent Makríll gefur milljarða
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































